Fjórða hvalaskoðunar- fyrirtækið á Húsavík í burðarliðnum

Stefnt er að því að nýtt hvala­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki taki til starfa á Húsavík á næstu dögum. Fyr­ir­tækið, sem enn hefur ekki hlotið nafn, á nú í samn­inga­við­ræðum við félagið Iceland Ocean Tours um kaup á tveimur svoköll­uðum RIB harð­skelja slöngu­bátum, sem félagið nýtti til sigl­inga um Breiða­fjörð­inn með ferða­menn þar til fyrir skemmstu. Bátarnir taka tólf far­þega í sæti og geta siglt á 40 sjó­mílna hraða.

Á Húsavík eru fyrir þrjú hvala­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki; Norð­ur­sigl­ing, Gentle Giants og Salka, en þús­undir ferða­manna leggja leið sína til Húsa­víkur ár hvert til að berja hvali augum og straum­ur­inn vex ár frá ári.

Eigendur nýja hvala­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins á Húsavík eru Sigurður Veigar Bjarna­son, stofn­andi og fyrrum eig­andi Iceland Refund sem nú heitir Tax Free Worldwide, og Gunn­laugur Karl Hreins­son, fram­kvæmda­stjóri og eig­andi fisk­vinnsl­unnar GPG Seafood á Húsavík.

„Við sjáum bara gott tæki­færi í því að bæta við þann flota sem fyrir er á Húsavík í dag, bæði hvað varðar þá við­bót að fá þessa RIBS báta á svæðið, sem færa ferða­menn­ina enn nær skepn­unni heldur en ella og eru líka skemmti­legir ef ekki er hvalur í fló­anum því þá er hægt að gera ýmis­legt annað eins og að skoða Lundey og þarna í kring. Við erum með þessu að reyna að styrkja Húsavík sem helsta hvala­skoð­un­ar­stað í heimi,“ segir Sigurður Veigar í sam­tali við Kjarnann.

„Það er gríð­ar­leg aukn­ing þarna í komum ferða­manna. Þarna eru að sækja um það bil hund­rað þús­und ferða­menn á ári í hvala­skoðun, og færri kom­ast að en vilja þegar góðir dagar eru. Auðvitað er rólegt þar á milli, en það er nóg pláss í fló­anum og þetta verður bara góð við­bót fyrir Hús­vík­inga að fá fleiri báta þarna inn til að styrkja svæðið enn frekar.“

Aðspurður segir Sigurður Veigar fyr­ir­tækið stefna á að hefja hvala­skoð­un­ar­ferðir með ferða­menn á Skjálf­anda­flóa strax í byrjun júní, gangi samn­inga­við­ræður um kaup á bát­unum eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár