Blaðamaðurinn Jóhann Hauksson rekinn frá DV

Blaða­mann­inum Jóhanni Hauks­syni var sagt upp störfum hjá DV í gær. Þetta stað­festir Eggert Skúlason, rit­stjóri blaðs­ins, í sam­tali við Kjarnann.

„Það eru bara áfram­hald­andi hag­ræð­ing­ar­að­gerðir í gangi á DV, og það er svo sem eina skýr­ingin,“ segir Eggert aðspurður um ástæður upp­sagn­ar­innar. Hann vill ekki upp­lýsa um hvernig að starfs­lokum Jóhanns verði staðið, en stað­festir að blaða­mað­ur­inn muni ekki mæta aftur til starfa á rit­stjórn­ina. „Hvernig starfs­lok­unum er háttað er trún­að­ar­mál milli okkar og hans.“

Aðspurður um hvort von sá á fleiri hag­ræð­ing­ar­að­gerðum hjá DV, segir rit­stjór­inn svo ekki vera. „Nei, ég á ekki von á því. En eins og þið þekkið vænt­an­lega á Kjarn­anum þá eru menn stöðugt að horfa í krónur og aura og þessir fjöl­miðlar þurfa allir að reyna í það minnsta að reka sig, út á það gengur þetta.“

Rekstur DV gengur betur


Eggert segir blaðið nú á réttri leið, en eins og kunn­ugt er sögðu margir áskrif­endur DV upp áskrift sinni að blað­inu eftir að nýir eig­endur og ný rit­stjórn tók við útgáf­unni og upp­sagnir blaða­manna sem fylgdu í kjöl­farið. „Rekst­ur­inn gengur orðið miklu betur. Við höfum náð að stór­auka aug­lýs­inga­söl­una eins og sést á síðum blaðs­ins, og sama skapi aug­lýs­ingar á vefnum. Áskrift­ar­átakið hefur lukk­ast vel, en það er svo sem skulda­hali sem menn eru að vinna með og það er verk­efnið. En það gengur vel.“

Samkvæmt síð­asta árs­reikn­ingi DV ehf. fyrir árið 2013 nam skulda­staða félags­ins rúmum 116 millj­ónum króna í árs­lok þess árs. Þá nam rekstr­ar­tap félags­ins árið 2013 sam­tals 37,1 milljón króna.

Ekki náð­ist í Jóhann Hauksson við vinnslu þess­arar fréttar. Hann hlaut blaða­manna­verð­laun árs­ins 2009 fyrir „leið­andi umfjöllun um fall og myndun rík­is­stjórna og frétta­skýr­ingar um mik­il­væg þjóð­fé­lags­mál,“ eins og segir í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár