Sigmundur Davíð: Ásmundur Einar drekkur minnst þingmanna

Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­sæt­is­ráð­herra, blöskrar umræðan um nýlega flug­ferð utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis til Washington. Í kjöl­far ferð­ar­innar birt­ust frétt í fjöl­miðlum þar sem kom fram að Ásmundur Einar Daðason, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra, hefði kastað upp yfir aðra flug­far­þega.

Þá hefur verið full­yrt að Ásmundur Einar hafi verið ofurölvi í flug­vél­inni, og upp­köst hans megi rekja til þess. Ásmundur hefur sjálfur borið við veik­indum í flug­inu, og hefur vara­maður hans tekið sæti hans á Alþingi þar til hann jafnar sig á veik­ind­unum.

Séð hann torga einum bjór með hvatningu


Í við­tali sem birt­ist á Eyjunni í dag, segir Sig­mundur Davíð það alvar­legt mál hvernig veist hafi verið að æru þing­manns­ins.

„Því að í fyrsta lagi er Ásmundur Einar lík­lega sá þing­maður sem drekkur minnst áfengi af öllum sem á annað borð eitt­hvað drekka á þingi. Ég held að ég hafi séð hann kom­ast í gegnum einn bjór á heilu þorra­blóti og það með hvatn­ingu við­staddra, þá náði hann að torga einum. Svo veikt­ist hann þarna og virð­ist hafa verið fár­veikur mað­ur­inn. En búinn að þola alls konar sögu­sagnir og það sem var verst að þing­menn sem voru með í för, og sér­stak­lega einn þing­maður sem reyndar var ekki með í þess­ari til­teknu flug­ferð, skyldu fara að dylgja um hann og jafn­vel að tala um hvort og hversu oft hann hafi sést fara á sal­ernið. Þá finnst mér menn komnir yfir nýja línu og út fyrir ein­hver mörk sem menn ættu ekki að að fara út yfir.“

Fleiri hafa komið Ásmundi til varnar


Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna og fyrrum flokks­bróðir Ásmundar Einar, tók upp hansk­ann fyrir þing­mann­inn í pistli sem hann birti á vef­síðu sinni í gær. Þar vildi hann bregð­ast við stað­hæf­ingum um að Ásmundur Einar hafi kastað upp vegna ölv­unar í umræddri flug­ferð, sem Ögmundur var reyndar ekki í.

„Nokkrir fjöl­miðlar hafa útmálað þetta á drama­feng­inn hátt. Það mun vissu­lega vera rétt að Ásmundur hafi orðið illa veikur. Það mun líka vera rétt að hann hafi fengið sér vín.

En veikur var hann alla ferð­ina og kastaði upp á leið­inni út og á leið­inni heim og kom áfengi þar hvergi nærri. Heim­kom­inn leit­aði hann læknis sem setti hann á lyfjakúr og ráð­lagði honum að vera frá vinnu um sinn. Engu að síður brást hann við kalli um að mæta á nefnd­ar­fund og í atkvæða­greiðslu þótt veikur væri. Sagt er að hann hafi brosað í þing­sal, veikur mað­ur­inn!“

Að lokum skrifar Ögmundur á vef­síðu sína: „Vitn­is­burður vel­vilj­aðra ferða­fé­laga kemur heim og saman við kynni mín af Ásmundi Einari. Ég hef kynnst honum vel á und­an­förnum árum, fyrst sem félaga mínum í VG síðan sem sam­starfs­manni á Alþingi. Margoft hef ég tekið þátt í gleð­skap með Ásmundi Einari og í ljósi þeirrar reynslu full­yrði ég þetta: Hann er hóf­semd­ar­maður og stendur hann mörgum okkar framar að því leyti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár