Sigmundur Davíð segir þjóðina veruleikafirrta

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, skýrir ört minnk­andi stuðn­ing almenn­ings við rík­is­stjórn­ina og stjórn­ar­flokk­anna á kjör­tíma­bil­inu í áhuga­verðu við­tali sem birt­ist á Eyjunni í dag.

Aðspurður um hinn þverr­andi stuðn­ing, svarar for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við blaða­mann Eyjunnar: „Að ein­hverju leyti skýrist þetta kannski á þessu rofi milli raun­veru­leika og skynj­unar eða umfjöll­unar. En þarna er líka hollt að líta til ann­arra landa. Það eru fram­kvæmdar sam­bæri­legar kann­anir til dæmis í Bret­landi fyrir kosn­ing­arnar þar, þar sem mátti sjá svip­aðar nið­ur­stöður. Stjórn­mála­menn eru ekk­ert sér­stak­lega vel liðnir á Vest­ur­löndum þessa dag­ana. Það tekur á sig ýmsar birt­ing­ar­myndir, en almennt er ríkj­andi mjög mikið van­traust í garð stjórn­mála­manna og flokka. Sérð það líka nátt­úr­lega á þessum fylgiskönn­unum og þessu ótrú­lega fylgi sem Píratar fá.“

Þá segir Sig­mundur Davíð að nei­kvæð umræða, sem sé oft byggð á rang­færslum, hafi sín áhrif. „Auk þess er alveg gegn­um­gang­andi, og þetta á ekki bara við hér á Íslandi en þetta hefur verið sér­stak­lega áber­andi hér und­an­farin ár, að það er verið að ala á tor­tryggni í garð alls og allra. Draga upp þá mynd af öllu sem gert er, að það hljóti að vera eitt­hvað grun­sam­legt þar að baki. Allt frá breyt­ingum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu að lækkun tolla og gjalda þar sem er full­yrt, ein­fald­lega rang­lega, að verið sé að hygla fólki með hærri tekjur þegar sér­stak­lega er verið að huga að þeim sem eru með lægri tekj­urnar, eins og töl­urnar sýna okkur. Þetta stöðuga nið­ur­rifs­tal auð­vitað hefur sín áhrif. Það er búið að vera ráð­andi hér nei­kvæðni og tor­tryggni sem getur orðið mjög skað­leg,“ segir for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við Eyjuna.

Raunveruleikinn eitt, tilfinningin eitthvað annað


Aðspurður um af hverju ónægjan í sam­fé­lag­inu með ástand mála stafi, og af hverju fólk sjái sig knúið til að fara í verk­föll til að knýja fram kjara­bætur, svarar Sig­mundur Davíð: „Raun­veru­leik­inn er oft eitt og svo er til­finn­ingin eitt­hvað annað. Því er mjög oft haldið á lofti núna, rang­lega, að mis­skipt­ing sé að aukast hér á landi. Auðvitað er ekki full­kom­inn jöfn­uður hér frekar en ann­ars staðar, en hann er þó meiri hér en víð­ast hvar, ef ekki alls staðar ann­ars staðar. Og hefur verið að lag­ast enn í tíð þess­arar rík­is­stjórnar. En stöðugt er full­yrt að hið gagn­stæða sé raunin.“

Þjóðin á að vera bjartsýn og jákvæð


Þá tekur Sig­mundur Davíð undir það að rík­is­stjórn­inni hafi mis­tek­ist að „virkja sam­taka­mátt þjóð­ar­innar og vinna gegn því sund­ur­lyndi og tor­tryggni sem ein­kennt hafi íslensk stjórn­mál og umræðu í sam­fé­lag­inu um nokk­urt skeið,“ eins og það er orðað í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

„Það er alveg rétt að það er mikið sund­ur­lyndi ríkj­andi. Það satt best að segja ætti ekki að þurfa að vera eins mikið og það er. Bjart­sýni og jákvæðni ætti að vera ríkj­andi. Þegar við berum þró­un­ina hér á landi saman við þró­un­ina nán­ast alls staðar ann­ars staðar, þá ættum við Íslend­ingar að vera bjart­sýn á fram­tíð­ina. Reyndar verður þarna að fylgja sög­unni þó ég tali um að nei­kvæðni og tor­tryggni séu áber­andi í umræðu hér á landi, þá er þó stór hluti þjóð­ar­innar ekki á þeim stað. Þótt auð­vitað hafi þetta smátt og smátt áhrif. Við sjáum að mjög stór hluti Íslend­inga vill fara að líta fram á við og er orð­inn þreyttur á nið­ur­rifstal­inu,“ segir for­sæt­is­ráð­herra í áður­nefndu við­tali við Eyjuna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár