Páll Winkel kallar Gest Jónsson „freka kallinn“

Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unnar segir Gest Jónsson, verj­anda Sigurðar Ein­ars­sonar, sem afplánar fang­els­is­dóm á Kvía­bryggju fyrir Al-Thani málið og sætir ákæru í stóru mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli sem nú er rekið fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, fara fram með frekju með því að krefj­ast sér­með­ferðar fyrir skjól­stæð­ing sinn. Þetta segir Páll í sam­tali við Kjarnann.

Gestur hefur sakað fang­els­is­mála­stjóra um að brjóta á mann­rétt­indum skjól­stæð­ings síns með því að synja honum um dag­legar bíl­ferðir frá Kvía­bryggju, vegna aðal­með­ferðar í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings, heldur gera honum að gista í Hegn­ing­ar­hús­inu við Skóla­vörðu­stíg á meðan aðal­með­ferð máls­ins fór fram.

Í grein sem Gestur skrifar í Frétta­blaðið í dag, sakar hann fang­els­is­mála­stjóra um að hafa reglur stofn­un­ar­innar framar mann­rétt­indum, og vísar í því efni til 6. greinar mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu þar sem segir:

Hver sá sem bor­inn er sökum um refsi­verða hátt­semi skal eigi njóta minni réttar en hér greinir:
...........
b. Hann fái nægan tíma og aðstöðu til að und­ir­búa vörn sína.
c. Hann fái að halda uppi vörnum sjálfur…
d. Hann fái að spyrja eða láta spyrja vitni sem leidd eru gegn honum…

Þá hefur Gestur sömu­leiðis gagn­rýnt fang­els­is­mála­yf­ir­völd fyrir að hafa synjað beiðni hans um að Sigurður yrði fluttur úr Kvía­bryggju á skrif­stofu lög­manns­stofu hans um helgi, til að und­ir­búa skjól­stæð­ing sinn undir skýrslu­tökur.

Sakaði fangelsismálastjóra um ósannindi


For­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV í fyrra­dag að ákvörðun um „að synja refsi­fanga um bíl­stjóra og bíl til að aka í sex tíma á hverjum degi í fimm vikur sé ekki mann­rétt­inda­brot, heldur full­kom­lega eðli­leg vinnu­brögð. Það að ein­hverjum lög­manni hins vegar detti í hug að til­teknir fangar geti borgað fyrir umfram­rétt­indi sé í besta falli dóm­greind­ar­skortur og til marks um þekk­ing­ar­leysi á því hvernig okkar fulln­ustu­kerfi, og reyndar hjá öðrum sið­mennt­uðum þjóðum virkar.“

Í grein sinni í Frétta­blað­inu í dag skrifar Gestur: „Verj­and­inn vill taka það fram að hann hefur aldrei nefnt við fang­els­is­mála­stjóra eða annan starfs­mann hjá stofn­un­inni að mað­ur­inn fái „umfram­rétt­indi“ og það eru hrein ósann­indi að verj­and­inn hafi boðið borgun fyrir slíkt. Þess hefur ein­ungis verið óskað fyrir hönd ákærðs manns að hann fái notið lög­bund­inna rétt­inda sinna til þess að verj­ast fyrir dómi og fá að fylgj­ast með sönn­un­ar­færsl­unni gegn sjálfum sér. Verj­and­inn hefur haldið því fram að mað­ur­inn fái ekki í reynd notið þess­ara mann­rétt­inda vegna skil­yrða sem stofn­unin setur. Telur verj­and­inn að mann­rétt­indin gangi framar reglum Fang­els­is­mála­stofn­unar um fulln­ustu refs­inga.“

„Gestur er ekki eini lögmaðurinn á Íslandi“


„Það eru mann­rétt­inda­brot að fangar í geð­rofi séu lok­aðir inni án við­eig­andi þjón­ustu, og það eru mann­rétt­inda­brot að dóm­þolar þurfi að bíða lengi eftir afplánun og það eru mann­rétt­inda­brot að fangi fái ekki full­nægj­andi heil­brigð­is­þjón­ustu eða aðra þjón­ustu sem er lög­bundin,“ segir Páll Winkel í sam­tali við Kjarnann aðspurður um gagn­rýni verj­anda Sigurðar Ein­ars­sonar.

„Það er hins vegar ekki mann­rétt­inda­brot að geta ekki valið sér gisti­stað eftir langan dag í Hér­aðs­dómi. Við tryggjum fullt aðgengi allra refsi­fanga að lög­mönnum og gögnum, en við getum ekki tryggt fullt aðgengi refsi­fanga að lög­mönnum á þeim stöðum þar sem þeim hentar. Það fylgir því að vera afplán­un­ar­fangi að þú ert sviptur frelsi þínu. Þú ferð ekki á skrif­stofur út í bæ eða út að borða. Þú ert á okkar ábyrgð og ferð eftir þeim reglum sem við setjum. Ef fangar eiga erindi í Reykja­vík, þá eru þeir vistaðir í Reykja­vík. Við höfum vistað konur og karla á aldr­inum fimmtán til 95 ára í Hegn­ing­ar­hús­inu og það sama skal yfir alla ganga.“

Aðspurður um hvort Páll hafi borið Gest Jónsson röngum sökum, með því að láta að því liggja að hann hafi boðið greiðslu fyrir „umfram­rétt­indi“ til handa skjól­stæð­ingi sínu, svar­aði hann: „Það er ein­fald­lega þannig að lög­menn í þessu stóra máli hafa farið fram á hluti sem engum hefur dottið í hug hingað til að fara fram á. Ég furð­aði mig aðeins á því að ein­hverjum lög­manni skyldi láta sér detta það í hug að fangar geti borgað fyrir umfram­rétt­indi, og Gesti Jónssyni til upp­lýs­ingar, þá er hann ekki eini lög­mað­ur­inn á Íslandi. Jón Gnarr skrif­aði um dag­inn, hvað það geti verið þreyt­andi að tala við „freka kall­inn,“ það er því miður verk­efni mitt í þessu máli,“ segir Páll Winkel í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár