María Ólafs tæp inn í úrslit Eurovision... samkvæmt veðbönkum

Samkvæmt vef­síð­unni Oddschecker, sem heldur utan um veð­mála­stuðla helstu veð­mála­síðna heims, kemst fram­lag Íslands í Eurovision, Unbroken, í flutn­ingi Maríu Ólafs­dóttur, upp úr seinni und­an­úr­slit­ar­iðl­inum í kvöld og inn í úrslit söngvakeppn­innar. Með naum­indum þó.

Íslenska lagið verður það níunda inn í úrslitin sam­kvæmt spá Oddschecker, en tíunda og síð­asta lagið upp úr riðl­inum verður fram­lag Póllands ef spáin gengur eftir. Sjö þjóðir þykja næsta öruggar inn í úrslitin sam­kvæmt veð­bönkum; Svíar, Norðmenn, Aserar, Slóvenar, Lettar, Ísraelar og Kýp­verjar. Auk Íslands munu fjórar aðrar þjóðir berj­ast hat­ramm­lega um síð­ustu þrjú sætin í úrslit­unum; Litháar, Pól­verjar, Svart­fell­ingar og Malt­verjar.

Sænska lagið, Heroes í flutn­ing Måns Zelmerlöw, er spáð fyrsta sæt­inu í riðl­inum, en lagið þykir sömu­leiðis mjög sig­ur­strang­legt í sjálfum úrslitum Eurovision, sem fram fara á laug­ar­dag­inn.

Telur íslenska lagið eiga ágætis möguleika


[caption id="attachment_29322" align="align­right" width="225"] Baldvin Þór Bergsson er staddur í Vín til að fylgj­ast með Eurovision. Mynd: BÞB[/caption]

Baldvin Þór Bergsson, einn fremsti sér­fræð­ingur RÚV í Eurovision, er staddur í Vín­ar­borg þar sem hann fjallar um ævin­týri íslenska hóps­ins í söngvakeppn­inni. Hann er bjart­sýnn á vel­gengni íslenska lags­ins.

„Ég held að mögu­leik­arnir séu ágætir en stað­reyndin er sú að þetta er sterkur rið­ill. Í fyrra var Ísland í riðli með 14 öðrum þjóðum en nú eru það 17 lönd sem berj­ast um 10 sæti þannig að mögu­leik­arnir eru minni. Við treystum hins vegar á stig frá Svíþjóð, Noregi, Bret­landi og Ástralíu að minnsta kosti og svo er nú lík­legt að Eistar verði góðir við okkur. Að minnsta kosti hafa flytj­endur þeirra verið dug­legir að tala um það við íslenska fjöl­miðla­menn að Ísland hafi verið fyrsta ríkið til að við­ur­kenna sjálf­stæði þeirra.“

Þá telur Baldvin Þór að Ísland geti nán­ast reitt sig á stig frá Bretum og Áströlum, en þjóð­irnar mega greiða atkvæði í kvöld. „Bretar hafa yfir­leitt gefið okkur stig og kannski er tón­list­arsmekkur þjóð­anna svip­aður. María hefur svo verið dug­leg að hrósa ástr­alska flytj­and­anum og mæta í við­töl við ástr­alska fjöl­miðla þannig að það ætti að skila stigum.“

Slagurinn mun standa á milli Svía, Ítala, Rússa og Ástrala


Veð­bankar eru ekki alveg á eitt sáttir um hvaða lag muni bera sigur úr býtum í úrslitum Eurovision-keppn­innar, en ljóst þykir að bar­áttan um sig­ur­verð­launin muni standa á milli Svía, Ítala, Rússa og Ástrala.

Það blæs hins vegar ekki svo byr­lega fyrir Maríu okkar Ólafs­dóttur og félaga í íslenska hópnum sam­kvæmt veð­bönkum, en eins og staðan lítur út í dag á Oddschecker er fram­lagi Íslands spáð hinu víð­fræga 16. sæti í keppn­inni, og hefur lækkað um tvö sæti frá því í gær. Eins og kunn­ugt er stígur María á sviðið í Vín í kvöld, og við­búið er að spá veð­bank­anna breyt­ist ef flutn­ingur fram­lags Íslands gengur vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár