Fangelsismálastjóri hafnar ásökunum um mannréttindabrot á Kaupþingstoppum

„Það að synja refsi­fanga um bíl­stjóra og bíl til að aka í sex tíma á hverjum degi í fimm vikur er ekki mann­rétt­inda­brot, heldur full­kom­lega eði­leg vinnu­brögð. Það að ein­hverjum lög­manni hins vegar detti í hug að til­teknir fangar geti borgað fyrir umfram­rétt­indi er í besta falli dóm­greind­ar­skortur og til marks um þekk­ing­ar­leysi á því hvernig okkar fulln­ustu­kerfi, og reyndar hjá öðrum sið­mennt­uðum þjóðum virkar.“

Þetta segir Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, í sam­tali við frétta­stofu RÚV. Þar bregst Páll harð­lega við ásök­unum Gests Jóns­sonar, verj­anda Sigurðar Ein­ars­sonar sak­born­ings í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings, um að fang­els­is­mála­yf­ir­völd hafi brotið á mann­rétt­indum skjól­stæð­ings hans. Á Sigurði væri brotið með því að gera honum ekki kleift að fylgj­ast með rétt­ar­höld­unum yfir sér, nema með því að vera vistaður í Hegn­ing­ar­hús­inu við Skóla­vörðu­stíg.

Hreiðar Már vildi fá að borga fyrir bílferðirnar sínar


Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, sem nú afplánar fang­els­is­dóm á Kvía­bryggju ásamt Sigurði Ein­ars­syni fyrir aðild að Al-Thani mál­inu svo­kall­aða, kvart­aði sömu­leiðis á dög­unum undan því að honum hafi verið neitað um flutn­ing milli fang­els­is­ins og Reykja­víkur á meðan á rétt­ar­höld­unum stæði. Jafnvel þó hann hafi boð­ist til að standa straum af kostn­aði við bíl­ferð­irnar.

Í sam­tali við RÚV segir for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar að pen­ingar gangi ekki sem gjald­mið­ill hjá stofn­un­inni, heldur hegðun og fram­koma. „Að þeim auð­ævum hafa allir fangar jafnt aðgengi, háir sem lágir, ríkir sem fátækir.“

Hið sama gildir um alla


Verjandi Sigurðar Ein­ars­sonar gagn­rýndi sömu­leiðis að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið nauð­beygður til að gista í Hegn­ing­ar­hús­inu, ella missa af rétt­ar­höld­unum yfir sér. Skjól­stæð­ingur sinn væri ekki ungur maður, heilsa hans kannski ekki nógu góð og úti­lokað að hann næði að hvíl­ast í Hegn­ing­ar­hús­inu.

Í áður­nefndri frétt RÚV er haft eftir for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­unar vegna þessa: „Við höfum verið þar með fanga vistaða sem eru fæddir 1918, 1929. Þetta hefur gengið fyrir alla. [...] Frá árinu 1873 hafa allir fangar sem hafa verið við­staddir aðal­með­ferð í Reykja­vík verið vistaðir í fang­els­unum í Reykja­vík. Það hafa allir fangar getað hingað til og gera þar til annað fang­elsi tekur við. Svo ein­falt er það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár