Fjárlaganefnd Alþingis krefur RÚV um skýrslur og skýringar

Fjár­laga­nefnd Alþingis sendi for­svars­mönnum RÚV tölvu­póst þann 7. maí síð­ast­lið­inn, þar sem nefndin fer fram á að fá afhend gögn sem RÚV afhenti sam­ráðs­hópi ráðu­neyt­anna, sem skip­aður var vegna fjár­hags­vanda félags­ins, og lágu meðal ann­ars til grund­vallar þegar RÚV var veitt skil­yrt 181,9 millj­óna auka­fjár­veit­ing á síð­asta ári.

Um er að ræða tvær skýrslur, frá end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækj­unum Deloitte og PwC um fjár­hags­stöðu RÚV, upp­lýs­ingar um kostnað við breyt­ingar á yfir­stjórn félags­ins sem og öll önnur gögn sem sam­ráðs­hópur ráðu­neyt­anna hefur nú þegar fengið.

Fjár­laga­nefnd ítrek­aði erindi sitt til RÚV á föstu­dag­inn, þar sem einnig kom fram að nefnd­ar­menn teldu sig ekki hafa brotið trúnað með því að ræða nýlega kynn­ingu stjórnar RÚV fyrir nefnd­inni opin­ber­lega í des­em­ber, en RÚV sendi nefnd­inni athuga­semd þess efnis.

Í ítrekun fjár­laga­nefndar til RÚV er sömu­leiðis óskað eftir upp­lýs­ingum um kjara­samn­ing sem félagið gerði nýverið við tækni­menn sína.

Fyrr­greind auka­fjár­veit­ing til RÚV upp á 181,9 millj­ónir króna, var háð þeim skil­yrðum að fram færi vinna við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins. Þá yrði útborgun fjár­ins sömu­leiðis háð því að „hald­bærar rekstr­ar­á­ætl­anir séu lagðar fram þar sem fram komi hvernig starf­semi stofn­un­ar­innar verði komið á réttan kjöl og hún verði sjálf­bær til fram­búðar,“ eins og segir í nefnd­ar­á­liti fjár­laga­nefndar vegna auka­fjár­veit­ing­ar­innar.

„Framlög til RÚV hafa hækkað um 500 millj­ónir á árs­grund­velli eftir að þessi rík­is­stjórn tók við, en samt sem áður eru veru­leg fjár­hags­vand­ræði hjá stofn­un­inni. Það er hlut­verk fjár­laga­nefndar að hafa eft­ir­lit með fjár­lögum. Það er ekki hægt að sinna því verk­efni nema með því að hafa upp­lýs­ingar, þess vegna köllum við eftir þessum upp­lýs­ingum,“ segir Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og vara­for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár