Fyrrverandi fréttamaður á RÚV missti röddina eftir læknamistök

Þór­hallur B. Jós­eps­son, sem starf­aði um ára­bil sem frétta­maður hjá RÚV, er radd­laus eftir skurð­að­gerð sem hann gekkst undir í júlí­mán­uði þar sem ofvax­inn skjald­kirt­ill var fjar­lægður.

Þór­hallur, sem nú starfar hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna, hefur sent emb­ætti Land­læknis kvört­un­ar­bréf vegna máls­ins, þar sem hann segir að Land­spít­ali hafi brotið á laga­rétti sínum til bestu heil­brigð­is­þjón­ustu sem völ er á með því að hafa ekki staðið rétt að und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd aðgerð­ar­innar.

Lífsnauðsynleg aðgerð


Læknir sendi Þórhall í umrædda aðgerð vegna ofvax­ins skjald­kirtils sem far­inn var að þrengja að önd­un­ar­vegi hans, en Þór­hallur hafði þá átt við mikla mæði að stríða að und­an­förnu. Eftir tölvu­sneið­mynda­töku var ákveðið að senda hann í aðgerð á Land­spít­al­ann, Göngu­deild 10E við Hring­braut. Læknir þar tók ákvörðun um að fresta aðgerð­inni um rúma viku vegna blóð­þynn­ing­ar­lyfs sem Þór­hallur var á, svo áhrif þess gætu fyrst fjarað út.

Frest­unin varð til þess að annar læknir fram­kvæmdi aðgerð­ina á Þórhalli, og fór hún fram 15. júlí síð­ast­lið­inn á Land­spít­al­anum við Hring­braut.

Þegar Þór­hallur vakn­aði eftir aðgerð­ina komst hann fljót­lega að raunum um að rödd hans var farin og var honum tjáð í kjöl­farið að taug í vinstra radd­bandið hefði klofnað í aðgerð­inni og til­raunir til að gera við hana hefðu ekki borið árangur.

Í kjöl­farið var Þór­hallur sendur til sér­fræð­inga á háls-, nef- og eyrna­deild Land­spít­al­ans í Fossvogi. Þar gekkst hann tví­vegis undir bráða­birgða­að­gerðir í ágúst­mán­uði síð­ast­liðnum þar sem reynt var að lag­færa radd­bandið, sem ekki báru árangur. Þór­hallur gekkst svo undir þriðju aðgerð­ina í nóv­em­ber.

Raddmissirinn valdið miklum óþægindum


„Sú aðgerð skil­aði þeim árangri að radd­böndin færð­ust saman, en röddin end­ur­heimt­ist ekki. Hef ég eftir það farið í nokkra tíma hjá tal­meina­fræð­ingi, en enn er þó engin rödd komin. Þótt ég geti myndað ein­hver hljóð, eiga þau ekk­ert skylt við þá rödd sem ég hafði áður,“ segir Þór­hallur B. Jós­eps­son í sam­tali við Kjarnann.

Hann segir radd­miss­inn hafa valdið sér miklum óþæg­indum. Fyrir utan almennt skert lífs­gæði sé ástandið sömu­leiðis mjög hamlandi í hans dag­legum störfum. Þá muni hann að óbreyttu ekki gera fleiri sjón­varps- eða útvarps­þætti sem hafi verið hans ær og kýr und­an­farin ár er hann starf­aði sem frétta­maður á RÚV, en vorið 2014 samdi hann auk þess um gerð tólf sjón­varps­þátta fyrir sjón­varps­stöð­ina ÍNN og náði að klára þrjá þeirra áður en hann missti rödd­ina.

Telur að brotið hafi verið á rétti sínum


Eins og áður segir hefur Þór­hallur sent emb­ætti land­læknis bréf þar sem hann segir farir sínar ekki sléttar. Bréfið var sent emb­ætt­inu þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þar segir Þór­hallur að brotið hafi verið á laga­rétti sínum til bestu heil­brigð­is­þjón­ustu sem völ er á með því að vera sendur í aðgerð hjá Land­spít­al­anum á Hring­braut, þar sem ekki sé að finna sömu sér­fræði­þekk­ingu og þjálfun til aðgerða af því tagi sem hann gekkst undir.

Þá sé sömu­leiðis til staðar tækja­bún­aður hjá Land­spít­al­anum í Fossvogi sem hefði getað komið í veg fyrir þann skaða sem hann varð fyrir. Þá gagn­rýnir hann að tækja­bún­að­ur­inn, sem sé lít­ill og með­færi­legur litlu stærri en far­tölva, hafi ekki verið færður úr Fossvogi yfir á Hring­braut þar sem aðgerðin fór fram. Þór­hallur kveðst hafa fengið stað­fest að líkur á sam­bæri­legu óhappi og hann varð fyrir séu 41 pró­sent minni með notkun umrædds tækja­bún­aðar.

Að öllu sam­an­lögðu telur Þór­hallur að Land­spít­al­inn hafi ekki farið rétt að við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd aðgerð­ar­innar sem hann gekkst undir. Embætti land­læknis hefur stað­fest mót­t­töku erindi Þórhalls, en ekk­ert form­legt svar við því hefur enn borist. Í sam­tali við Kjarnann kveðst Þór­hallur bíða nið­ur­stöðu land­læknis. Ekkert hafi verið ákveðið með fram­haldið, en ljóst sé að röddin hans komi ekki aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár