Launakönnun á RÚV stungið undir stól

Nið­ur­stöðum svo­kall­aðrar jafn­launa­út­tektar sem end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið PwC gerði fyrir RÚV árið 2012, í sam­ræmi við sam­þykkta jafn­rétt­is­á­ætlun rík­is­fjöl­mið­ils­ins, var stungið undir stól í fram­kvæmda­stjórn RÚV og aldrei birt starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins eins og kveðið var á um í jafn­rétt­is­á­ætl­un­inni. Reiði er á meðal kvenna innan RÚV vegna þessa, sem hafa kraf­ist þess að launa­könn­unin verði birt.

Með því að fylgja ekki jafn­rétt­is­á­ætl­un­inni, sem RÚV setti sér eins og lög gera ráð fyrir, gerð­ist rík­is­fjöl­mið­ill­inn þar með brot­legur við jafn­rétt­islög.

Í jafn­rétt­is­á­ætlun RÚV fyrir árin 2011 til 2014 segir að óháður aðili verði feng­inn til að vinna launa­könnun fyrir fyr­ir­tækið, sem verði svo lögð fyrir fram­kvæmda­stjórn og helstu nið­ur­stöður gerðar aðgengi­legar starfs­fólki á innri vef. „Komi í ljós kyn­bund­inn launa­munur skal hann strax leið­réttur,“ eins og segir í jafn­rétt­is­á­ætl­un­inni. Mark­miðið: Að karlar og konur fái sömu laun og kjör fyrir sömu eða jafn­verð­mæt störf. Eins og áður segir hafa nið­ur­stöður jafn­launa­út­tekt­ar­innar aldrei komið fyrir sjónir starfs­manna RÚV.

Niðurstöður kynntar í framkvæmdastjórn, svo ekkert meir


Heim­ildir Kjarnans herma að Berglind Berg­þórs­dóttir, þáver­andi mannauðs­stjóri RÚV, sem hafði for­ræði yfir gerð jafn­launa­út­tekt­ar­innar, hafi kynnt fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins helstu nið­ur­stöður hennar á fundi í mars árið 2013. Þar hafi svo verið tekin ákvörðun um að birta ekki nið­ur­stöður könn­un­ar­innar, vegna athuga­semda fram­kvæmda­stjórnar RÚV við aðferð­ar­fræði PwC við fram­kvæmd hennar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans kom fram allt að fimmtán pró­senta kyn­bund­inn launa­munur hjá RÚV í launa­könn­un­inni. Þá herma heim­ildir Kjarnans að engar form­legar athuga­semdir við fram­kvæmd jafn­launa­út­tekt­ar­innar hafi borist PwC.

Í sam­tali við Kjarnann kvaðst Páll Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri, ekki muna eftir umræddri launa­könnun og vís­aði á Berg­lindi Berg­þórs­dóttur, sem vildi engum spurn­ingum blaða­manns svara.

Reiði á meðal kvenna hjá RÚV - núverandi stjórn ypptir öxlum


Hópur kvenna innan RÚV hefur sótt fast að fá launa­könnun PwC afhenta, án árang­urs. Þá fór full­trúi trún­að­ar­manna hjá RÚV á fund hjá Magnúsi Geir Þórð­ar­syni, útvarps­stjóra, í lok febr­úar og fór fram á að helstu nið­ur­stöður launa­könn­un­ar­innar verði birtar. Nið­ur­stöð­urnar hafa enn ekki verið birtar, en í sam­tali við Kjarnann kvaðst Magnús Geir engar upp­lýs­ingar hafa um launa­könn­un­ina, né hvar hana sé að finna.

Jafn­rétt­is­stofa, sem hefur eft­ir­lit með því að stofn­anir og fyr­ir­tæki fari eftir sam­þykktum jafn­rétt­is­á­ætl­unum, hefur ekki óskað form­lega eftir því að launa­könn­unin verði birt, eins og kveðið er á um í jafn­rétt­is­á­ætlun RÚV. Til þess þarf Jafn­rétt­is­stofa að hafa rök­studdan grun um brot á jafn­rétt­islögum, en stofn­un­inni hafa engar form­legar kvart­anir borist vegna máls­ins.

Lítill áhugi yfirstjórnar á jafnréttismálum


Björg Eva Erlends­dóttir, sem var stjórn­ar­for­maður RÚV þegar launa­könn­unin var gerð, rekur ekki minni til að nið­ur­stöður hennar hafi verið kynntar í stjórn RÚV. „Og aðrir stjórn­ar­menn sem ég hef talað við muna ekki heldur eftir því. Það var í gildi jafn­rétt­is­á­ætlun, en eftir því sem ég best veit þá var aldrei byrjað að vinna eftir henni og við í stjórn­inni ýttum á eftir því að það yrði gert á stjórn­ar­fundum. En það var nú mjög aug­ljóst í raun­inni af sam­setn­ingu yfir­stjórn­ar­innar, eins og hún leit út þá, að áhugi á jafn­rétt­is­málum var ekki mik­ill.“

Þá kveðst Björg Eva hafa for­vitn­ast um launa­könn­un­ina nýverið. „En hafi henni verið lokið ein­hvern tím­ann, sem ég veit ekki, þá er hún ónot­hæf í dag eftir þær breyt­ingar sem Rík­is­tút­varpið hefur farið í gegnum þannig að það þyrfti að byrja upp á nýtt.“

Ný jafnréttisáætlun gerir ráð fyrir nýrri jafnlaunaúttekt


Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi jafn­rétt­is­á­ætlun RÚV sem gildir fyrir árin 2015 til 2018, sem Jafn­rétt­is­stofa hefur sam­þykkt, og bíður birt­ingar, er gert ráð fyrir sam­bæri­legri launa­könnun innan rík­is­fjöl­mið­ils­ins á tíma­bil­inu.

„Skortur á jafn­rétti í fjömiðlum bæði í stjórnum og umfjöllun um sam­fé­lags­mál hefur verið æpandi árum saman, og líka á Rík­is­út­varp­inu. Og ég bara harma það mjög mikið að það var ekki bætt úr því í minni tíð sem stjórn­ar­for­maður, ég hefði viljað það. Vonandi verða skref tekin í rétta átt núna, og það eru ein­hver merki um það, en betur má ef duga skal,“ segir Björg Eva Erlends­dóttir, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár