Formaður BSRB: Stjórnvöld inn á braut sérhagsmuna og ójafnaðar

„Á síð­asta ári voru kjara­samn­ingar megin þorra launa­fólks fram­lengdir með mjög hóf­legum launa­hækk­unum. Með þeim samn­ingi var skapað tæki­færi fyrir stjórn­völd til að byggja sam­fé­lag jafn­aðar, þar sem hags­munir heild­ar­innar voru settir í for­grunn. En í stað þess að nýta þetta ein­staka tæki­færi og leggj­ast á eitt með launa­fólki, með því að vinna að bættum hag almenn­ings, héldu stjórn­völd inn á braut sér­hags­muna og ójafn­aðar.“ Þetta sagði Elín Björg Jóns­dóttir, for­maður BSRB í ræðu sinni á Akureyri í dag, í til­efni af alþjóð­legum bar­áttu­degi verka­fólks. „Við stöndum frammi fyrir alvar­leg­ustu deilum á vinnu­mark­aði í áraraðir.“

Í ræðu sinni sagði for­maður BSRB að laun afmark­aðra hópa hafi hækkað langt umfram það sem fjöl­menn­ustu og lægst laun­uð­ustu hóp­arnir hafi samið um, ásamt því að ráð­ist var í nið­ur­skurð­ar­að­gerðir á flestum sviðum opin­berrar þjón­ustu og skatta­hækk­anir á mat­væli. Með aðgerðum sínum í þágu hinna fáu efna­meiri hafi stjórn­völd og atvinnu­rek­endur hafnað því að vinna sam­eig­in­lega á grunni stöð­ug­leika og sam­stöðu.

Leiðréttingin bara fyrir afmarkaðan hóp


Þá gerði Elín Björg nýleg ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, að umfjöll­un­ar­efni í ræðu sinni. „Fjár­mála­ráð­herra veltir því upp í alvöru hvort gengið hafi verið of langt í því að jafna kjör fólks. Þessi ummæli lætur hann falla eftir að hafa lækkað auð­linda­gjöld á útgerðir, lagt af auð­legð­ar­skatt á þá efna­mestu og boðað að til standi að afnema orku­skatt á stór­iðj­una sem mun spara álfyr­ir­tækj­unum rúman einn og hálfan millj­arð árlega í greiðslur til sam­fé­lags­ins. Ofan á allt hefur mat­ar­skattur á almenn­ing verið hækk­aður veru­lega og 80 millj­arðar af opin­beru fé fóru til leið­rétt­ingar hús­næð­is­lána afmark­aðs hóps. Í þeirri aðgerð voru stórir hópar skildir eftir og fengu enga leið­rétt­ingu sinna mála þótt aðgerðin ætti að heita almenn.“

Þá kall­aði for­maður BSRB eftir áfram­hald­andi sam­taka­mætti verka­lýðs­fé­lag­anna. „Sam­staðan er það afl sem getur breytt sam­fé­lagi til hins betra. Okkur tókst það fyrr á tímum, og okkur tekst það í fram­tíð­inni. Saman getum við reist betra sam­fé­lag, rétt­lát­ara sam­fé­lag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár