Píratar græða mest stjórnarandstöðuflokka á óánægjunni

„Fljótt á litið lítur þetta út eins og óánægju­fylgi. Þetta er sams­konar fyr­ir­brigði og við höfum séð oft áður, að ein­hver stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn rýkur upp og það hefur ekk­ert endi­lega með hug­mynda­fræði flokks­ins að gera. Ég hef grun um að ansi fáir af þessum 30 pró­sentum hafi skýra mynd af stefnu­málum Pírata, þetta er meira þannig að fólk sé að leita sér að val­kostum við ríkj­andi ástand,“ segir Gunnar Helgi Krist­ins­son stjórn­mála­fræð­ingur hjá Háskóla Íslands í sam­tali við Kjarnann, aðspurður um fylgi stjórn­mála­flokk­anna sem birt­ist í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Í Þjóð­ar­púls­inum mæl­ast Píratar stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins, en lið­lega 30 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu í könn­un­inni segj­ast myndu kjósa flokk­inn ef Alþing­is­kosn­ingar færu fram í dag. Það er sex­fallt meira fylgi en Píratar fengu í síð­ustu kosn­ingum. Flokk­ur­inn eykur fylgi sitt um rösk­lega átta pró­sentu­stig á milli kann­anna og hefur tvö­faldað fylgi sitt síðan í febr­úar. Fylgi flokks­ins tók mikið stökk í kjöl­far ákvörð­unar rík­is­stjórn­ar­innar að til­kynna Evr­ópu­sam­band­inu um að Ísland væri ekki lengur umsókn­ar­ríki að sam­band­inu.

Nær allir flokkar tapa fylgi - Björt framtíð í frjálsu falli


Fylgi vinstri grænna mælist 10,6 pró­sent og hækkar um hálft pró­sentu­stig á milli kann­anna, en aðrir flokkar á þingi missa fylgi á sama tíma. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með minnsta fylgi á kjör­tíma­bil­inu eða 22,9 pró­sent, og tapar 2,1 pró­sentu­stigi, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 10,1 pró­sent og tapar 0,7 pró­sentum, Sam­fylk­ingin tapar 1,7 pró­sentum á milli kann­anna og mælist með 14,1 pró­sent. Þá heldur fylgi Bjartar fram­tíðar áfram að minnka, en flokk­ur­inn mælist nú með 7,8 pró­sent og tapar 3,1 pró­sentu­stigi á milli kann­anna. Björt fram­tíð hefur tapað um tveimur fimmtu af sínu fylgi á tveimur mán­uðum og mælist nú með minnsta fylgi sem mælst hefur við flokk­inn á kjör­tíma­bil­inu.

„Þetta er nátt­úru­lega alvar­legt fyrir rík­is­stjórn­ina, hún kemur gríð­ar­lega veikt út úr þessu og mikil óánægja er með hana. En þetta er ekki síður alvar­legt fyrir hina stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana, af því að undir venju­legum kring­um­stæðum myndi ein­hver slíkur flokkur rjúka upp. Þetta er eitt­hvað sem er að gerj­ast í okkar sam­fé­lagi og reyndar í mörgum öðrum, að gömlu flokk­arnir eiga erf­ið­ara og erf­ið­ara að laða að sér fólk. Við erum með flokka­kerfi sem mót­að­ist í allt ann­ars konar þjóð­fé­lagi en við búum í núna, og það er ekk­ert óeðli­legt að fólk sé eitt­hvað dufla við eitt­hvað annað núna,“ segir Gunnar Helgi í sam­tali við Kjarnann.

Gunnar Helgi vill fara var­lega í það að túlka mikla fylg­is­aukn­ingu við Pírata sem ein­hvers konar stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við stefnu­mál flokks­ins. Hins vegar hafi fram­ganga flokks­ins að und­an­förnu vafa­lítið skilað sér í auknu fylgi, en það sama sé ekki upp á ten­ingnum hvað varðar Bjarta fram­tíð. „Þeir ná betur að tjá óánægju og kannski reiði og eitt­hvað þvíum­líkt heldur en Björt fram­tíð sem hefur kannski lagt áherslu á að vera mild­ari og hafa annan tón í póli­tík á meðan Pírat­arnir eru hvass­ari, en án þess að hafa misst sig í ein­hverja vit­leysu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár