Vestmannaeyjabær ræður Jónas Fr. til að gæta hagsmuna sinna varðandi sparisjóðinn

Vest­manna­eyja­bær hefur, ásamt öðrum fyrr­ver­andi stofn­fjár­eig­endum í Spari­sjóði Vest­manna­eyja, ráðið Jónas Fr. Jónsson, lög­mann og fyrr­ver­andi for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, til að gæta hags­muna sinna gagn­vart sjóðnum.

Fjár­mála­eft­ir­litið tók nýverið ákvörðun um sam­runa Spari­sjóðs Vest­manna­eyja og Lands­bank­ans, en sam­run­inn tók form­lega gildi þann 29. mars síð­ast­lið­inn. Bæj­ar­stjórn Vest­manna­eyja­bæjar telur að margt í aðdrag­anda falls spari­sjóðs­ins orki tví­mælis, að því er fram kemur í ályktun bæj­ar­stjórnar frá 1. apríl síð­ast­liðnum.

Í ályktun bæj­ar­stjórnar er sá skammi tími sem Fjár­mála­eft­ir­litið gaf stjórn sjóðs­ins til að bregð­ast við bágri fjár­hags­stöðu hans harð­lega gagn­rýndur. „Öllum er ljóst að sá vandi sem steðj­aði að Spari­sjóðnum var engin landsvá eins og þegar íslenska banka­kerfið hrundi haustið 2008. [...] Stjórn og stjórn­endum Spari­sjóðs­ins gafst eng­inn tími til að gera rekst­ar­á­ætl­anir eða vinna annan und­ir­bún­ing sem nauð­syn­legur var til að kynna núver­andi stofn­fjár­eig­endum fram­tíð­ar­mögu­leika sjóðs­ins með það í huga að leggja sjóðnum til nægj­an­legt fjár­magn til end­ur­reisnar hans. Því gafst ekki nauð­syn­legt ráð­rúm til umræðu og und­ir­bún­ings undir mögu­lega end­ur­reisn sjóðs­ins,“ segir í álykt­un­inni.

Ekki hugað að samkeppnissjónarmiðum


Þá gagn­rýnir bæj­ar­stjórn Vest­manna­eyja­bæjar að Lands­bank­anum, einum stofn­fjár­hafa, hafi verið veitt heim­ild til að kynna sér útlána­stöðu sjóðs­ins. „Þetta er ekki bara óskilj­an­legt út frá sjón­ar­miðum jafn­ræðis gagn­vart stofn­fjár­höfum, heldur einnig gagn­vart almennum sam­keppn­is­sjón­ar­miðum.“

Vest­manna­eyja­bær hefur meðal ann­ars falið Jónasi Fr. að vinna lög­fræði­legt mat á „fram­göngu rík­is­að­ila“ í tengslum við atriði sem koma fram í minn­is­blaði Elliða Vign­is­sonar bæj­ar­stjóra, sem fjallar um þá stöðu sem leiddi til „þess að Spari­sjóður Vest­manna­eyja var á þving­aðan máta sam­ein­aður við Lands­bank­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár