Hagnaður KEA nærri hálfur milljarður 2014 - laun stjórnenda hækkuðu um 25%

Hagnaður sam­vinnu­fé­lags­ins KEA á síð­asta ári nam 467 millj­ónum eftir skatta, sam­an­borið við 227 millj­ónir króna árið áður. Þá námu tekjur félags­ins tæpum 650 millj­ónum króna á árinu 2014 og hækk­uðu um 250 millj­ónir á milli ára. Eigið fé KEA um síð­ustu ára­mót nam 5,3 millj­örðum króna og heild­ar­eignir félags­ins hljóð­uðu þá upp á tæpa sex millj­arða króna. Þetta kemur fram í árs­skýrslu félags­ins fyrir árið 2014.

Þar kemur jafn­framt fram að Halldór Jóhanns­son, fram­kvæmda­stjóri KEA, hafi fengið greiddar rúmar 23,6 millj­ónir króna í laun og þókn­anir á árinu 2014, eða 1,9 millj­ónir króna á mán­uði. Samkvæmt árs­skýrslu félags­ins fyrir árið á undan, fékk Halldór röskar 18,2 millj­ónir króna í laun á árinu 2013. Laun fram­kvæmda­stjóra KEA hækk­uðu því um tæpar 5,4 millj­ónir króna á milli ára, eða um 450 þús­und krónur á mán­uði að jafn­aði.

Laun og þókn­anir til stjórnar og stjórn­enda KEA námu 32,1 milljón árið 2014, sam­an­borið við 25,6 millj­ónir króna árið áður, og hækk­uðu því um 6,5 millj­ónir eða um 25 pró­sent á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár