Framlög til rannsókna ofmetin um röska 100 miljarða síðasta áratug

Magnús Karl Magn­ús­son, pró­fessor í lyfja- og eit­ur­efna­fræði og for­seti Lækna­deildar Háskóla Íslands, segir nýja útreikn­inga Hag­stof­unar um heild­ar­út­gjöld til rann­sókna, nýsköp­unar og þró­unar, benda til að fram­lög til mála­flokks­ins hafi verið gróf­lega ofmetin und­an­farin ár. Þetta kemur fram í aðsendri grein Magnúsar til Kjarnans.

Heild­ar­út­gjöld til rann­sókna- og þró­un­ar­starfs numu tæp­lega 35,4 millj­örðum króna á síð­asta ári, eða sem nemur 1,88 pró­sentum af lands­fram­leiðslu Íslands það ár, sam­kvæmt frétt sem Hafstofa Íslands birti í síð­ustu viku. Heild­ar­út­gjöld fyr­ir­tækja voru rúmir 18,5 millj­arðar, háskóla röskir 11,6 millj­arðar og ann­arra opin­berra stofn­ana og sjálfs­eign­ar­stofn­ana rúmir 5,2 millj­arðar króna.

Fram til þessa hefur útreikn­ingur á fram­lögum til mála­flokks­ins verið á for­ræði Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Íslands (RANNÍS), þar sem opin­berar tölur hafa sýnt að 2,5 til þremur pró­sentum af lands­fram­leiðsl­unni hafi verið varið til rann­sókna- og þró­un­ar­starfs frá árinu 2000.

„Viðmið margra þjóða er að ná 3 pró­senta mark­inu og við höfum því, sam­kvæmt opin­berum tölum verið aðeins herslumun frá því við­miði. Vísinda- og tækni­ráð setti sér það sem mark­mið fyrir árið 2016 og það var því sam­kvæmt opin­berum gögnum raun­hæft að við gætum náð þessu mik­il­væga við­miði,“ skrifar Magnús Karl í áður­nefndri grein í Kjarn­anum.

Vitlaust reiknað í áratugi


Hagstofa Íslands tók við útreikn­ingum á fram­lögum til geirans á síð­asta ári, en fram­kvæmd stofn­un­ar­innar við útreikn­ing­ana nú fylgir aðferð­ar­fræði OECD, þar sem miðað er við að skila upp­lýs­ingum til alþjóða­stofn­ana sem séu sam­an­burð­ar­hæfar við nið­ur­stöður ann­arra landa.

Magnús Karl veltir fyrir sér ástæðu þess að tölur Hag­stof­unar séu þriðj­ungi lægri en opin­berar tölur RANNÍS fram til þessa, og hvort skýra megi þær með hruni sem mögu­lega hafi orðið í geir­anum.

„Skýr­ing­anna er senni­lega ekki leita í hruni. Líklegra er að við höfum reiknað vit­laust síð­ustu ára­tugi. Nýlega var tekin sú ákvörðun að flytja þessa mik­il­vægu en flóknu útreikn­inga frá Rannís til Hag­stof­unnar enda skiptir meg­in­máli að við getum borið okkur saman við nágranna­löndin en í flestum til­vikum eru þessir útreikn­ingar í höndum hag­stofa við­kom­andi landa. Aðferðir eru flóknar og nið­ur­staðan hefur afger­andi áhrif á ákvarð­anir stjórn­valda og atvinnu­lífs í vís­inda- og nýsköp­un­ar­málum.“

[caption id="attachment_27324" align="alignnone" width="746"] Graf sem Magnús Karl birti með grein sinni á Kjarn­anum.[/caption]

Yfir 100 milljarða króna skekkja


Á ofan­greindu línu­riti sýnir bláa línan þróun á fram­lögum til rann­sóknar og þró­unar sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu sam­kvæmt opin­berum tölum und­an­farin ár. Rauða línan sýnir fram­lög til geirans, þegar leið­rétt hefur verið sam­kvæmt aðferð­ar­fræð­inni sem Hag­stofan styðst nú við við útreikn­ing­anna.

Magnús Karl segir að miðað við ofan­greint, megi áætla að útreikn­ingar síð­ustu ára­tuga hafi verið ríf­lega þriðj­ungi of háir. „Hér er um að ræða 10-15 millj­arða skekkju á ári eða vel yfir hund­rað millj­arða síð­asta ára­tug. Það munar um minna.“

Að end­ingu segir Magnús Karl að töl­urnar setji stefnu­mótun í mála­flokknum í upp­nám. „Við erum ekki að að fjár­festa til fram­tíðar eins og við héldum að við værum að gera. Við þurfum að snúa við blað­inu, það þolir ekki bið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár