Framkvæmdastjóri FRÍ: Það hefði flækt málið ef ég hefði skipt mér af

Jónas Egilsson, fram­kvæmda­stjóri Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands (FRÍ) og stjórn­ar­maður hjá sam­band­inu, sem varð vitni að því þegar Arnar Pét­urs­son, Íslands­meist­ari karla í mara­þoni, stytti sér leið til sig­urs í Víða­vangs­hlaupi ÍR, segir að hann hafi ekki verið á staðnum í form­legum erinda­gjörðum og afskipti hans af mál­inu hefðu bara leitt til hærra flækju­stigs.

Þetta kemur fram í tölvu­pósti sem hann sendi Hirti Stef­áns­syni, föður Ingvars Hjart­ar­sonar, sem kom annar í mark í hlaup­inu og er alls ekki sáttur við fram­kvæmd hlaups­ins og dóm­gæslu. Hjörtur sendi Jónasi tölvu­póst fyrr í dag þar sem hann leit­aði við­bragða fram­kvæmda­stjóra FRÍ við mál­inu. Kjarninn hefur tölvu­póstana undir höndum.

Náði óeðlilegu forskoti


Í póst­inum sem faðir Ingvars sendi í dag segir: „Þegar mynd­band að neðan er skoðað sést að annar hlaupar­inn fylgir ekki þeirri leið sem mót­or­hjólið fer en það fer á undan hlaup­urum til að vísa þeim rétta braut og er því aug­ljós­lega kom­inn útfyrir hlaupa­braut­ina. Með því að fara svona útúr braut og skera innan af beygju verður leiðin sem er hlaupin ekki aðeins styttri heldur líka næst mild­ari beygja og þá tap­ast minni hraði. Þetta gefur því hlaupa sem gerir þetta óeðli­legt for­skot. Auðvitað er ég ekki hlut­laus í þessu.

https://vimeo.com/126132945

Það sem vekur enn meiri furðu mína er að þeir sem verða vitni að þessu og standa að hlaup­inu gera ekki athuga­semd við þetta á staðnum. Ég var erlendis og varð því ekki vitni að þessu en ofbauð þetta þegar ég skoða mynd­bandið. Þetta eiga braut­ar­verðir að sjá og til­kynna inn til hlaup­stjóra. Braut­ar­verðir tóku sér stöðu á þessu horni eftir að atvikið átti sér stað. Ef þetta er leyfi­legt verður erfitt að halda götu­hlaup í fram­tíð­inni þar sem girða þarf af alla hlaupa­leið­ina svo þetta verði ekki end­ur­tekið,“ skrifar Hjörtur Stef­áns­son í fyrr­greindum tölvu­pósti.

„Hefði kallað á meiri flækjur að hafa afskipti“


Þá spyr Hjörtur hvort Jónasi þyki eðli­legt að slíkt sé látið við­gang­ast, og hvort honum finn­ist ástæða til að mál­inu verði fylgt eftir og þá hvernig. Loks spyr Hjörtur: „Fannst þér ekki ástæða til að gera athuga­semd við þennan fram­gangs­máta á staðnum sem fram­kvæmda­stjóri FRÍ?“

Í svar­pósti Jónasar við tölvu­pósti Hjartar segir: „Til að svara síð­ustu spurn­ingu þinni, þá var ég EKKI á staðnum sem emb­ætt­is­maður hlaups­ins, til­nefndur form­lega til afskipta af hlaup­inu. Því hefði það kallað á meiri flækjur að hafa afskipti sem áhorf­andi af hlaup­inu, en ekki.“

Hlaup­stjórn ÍR óskaði álits FRÍ vegna atviks­ins í Víða­vangs­hlaupi ÍR, sem var birt í dag. Jónas Egilsson, fram­kvæmda­stjóri FRÍ er titl­aður fyrir því. Þar kemur fram að að ekki sé við Arnar Pét­urs­son að sakast í mál­inu, vegna ófull­nægj­andi merk­inga og dóm­gæslu á hlaupa­leið­inni. Þá harmar ÍR atvikið og lofar úrbótum við fram­kvæmd götu­hlaupa í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár