ÍR harmar atvik í Víðavangshlaupi og lofar úrbótum

Móts­hald­arar Víða­vangs­hlaups ÍR segja í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á heima­síðu íþrótta­fé­lags­ins rétt í þessu, að bæta þurfi verk­lag við götu­hlaup í ljósi atviks sem varð í hlaup­inu á fimmtu­dag­inn þegar sig­ur­veg­ari hlaups­ins, Arnar Pét­urs­son ríkj­andi Íslands­meist­ari í mara­þoni, stytti sér leið á loka­sprett­inum og náði þar með for­skoti á keppi­naut sinn Ingvar Hjart­ar­son.

Móts­hald­arar hlaups­ins ítreka í yfir­lýs­ingu sinni að fram­kvæmd hlaups­ins og merk­ing brautar hafi verið í sam­ræmi við það sem tíðkast hefur hér­lendis í sam­bæri­legum hlaupum. Hlaup­stjórn ÍR óskaði álits Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands á atvik­inu en þar segir meðal ann­ars:

„Hér er átt við atvik rétt fyrir lok hlaups­ins, þegar hlaup­ari fer yfir umferð­ar­eyju, bak við ljósa­staur og fer styttri hlaupa­leið en aks­ursleið segir til um og flestir aðrir hlauparar fóru um. Þetta gat verið mik­il­vægt atriði þar sem annar hlaup­ari sem var í harðri keppni við hann um sigur í hlaup­inu. Síð­ar­nefndi hlaupar­inn fer aðeins lengri leið út fyrir ljósastaur­inn, því náði sá sem stytti sér leið mögu­lega betra for­skoti en ella. Þó er ekki hægt að kveða úr um hvort þessi stytt­ing hafi skipt sköpum um end­an­lega röð þeirra í mark meðal ann­ars þar sem þeir voru, áður en að þessu atviki kom, því sem næst sam­síða. Þá virt­ist sá hlaup­ari, sem inn fyrir staur­inn fór, vera axl­ar­breidd á undan og hann var innan á keppni­naut sínum, þ.e. hefði farið nær staurnum í beygj­unni. Hann hefði því lík­lega haldið eða bætt við for­skot sitt á keppni­naut sinn vegna stað­setn­ingar sinnar hvort sem er.

Frjáls­í­þrótta­sam­band­inu er ljóst að reglum þess og IAAF um götu­hlaup er ábóta­vant er varðar eft­ir­lit og með fram­kvæmd götu­hlaupa. Einnig er sam­band­inu það kunn­ugt að fræðsla dóm­ara og móts­hald­ara götu­hlaupa hér á landi er líka ábót­vant. Ekki eru til reglur t.d. um eft­ir­lit með fram­kvæmd hlaupa hér á landi.

Þá virð­ist sem hlaup­stjórn VÍR hafi ekki tekið af með afdrátt­ar­lausum hætti hvar hlaupa­leið var með merk­ingum eða upp­lýst braut­ar­vörð hvernig skyldi staðið að gæslu á þeim stað sem um ræðir.

Reglur IAAF taka ekki á merk­ingum hlaupa­brautar en að þær skuli vera greini­legar, en án nán­ari skil­grein­ingar. Dómara við götu­hlaup ber taf­ar­laust að vísa kepp­anda úr leik hann ger­ist brot­legur við reglur. Slíkt átti sér ekki stað í þessu hlaupi.“

Þá segir í nið­ur­stöðu álits FRÍ: „Lagaleg ábyrgð á þessu atviki getur ekki verið í höndum hlauparans. Hlaupa­leið var ekki greini­lega afmörkuð eða vörðuð af braut­ar­verði þegar atvikið átti sér stað. Hlaupar­inn rauf því engar merk­ingar þegar hann virð­ist stytta sér leið að mark­inu. Óvissa um nákvæma stað­setn­ingu hlaupa­leiðar og ábyrgð ann­arra er of mikil til þess. Þá er kæru­frestur runn­inn út skv. reglum IAAF."

Að end­ingu segir svo í yfir­lýs­ing­unni frá ÍR: „Það er miður að atvik sem þetta þurfi til að bæta verk­lag við götu­hlaup. Ábyrgðin liggur hjá móts­höld­urum og í umgjörð götu­hlaupa en ekki íþrótta­mann­inum og ljóst að kapp­kostað verður að bæta fram­kvæmd­ina í götu­hlaupum ÍR í fram­tíð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár