Páll Jóhann færði stjórn sjávarútvegsfyrirtækisins yfir á konuna sína eftir kosningar

Páll Jóhann Pálsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks og full­trúi í atvinnu­vega­nefnd Alþingis, sem telur sig ekki van­hæfan til að fjalla um frum­varp sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um úthlutun mak­ríl­kvóta þó útgerð­ar­fé­lag konu hans, Marver, fái fimm­tíu millj­óna króna mak­ríl­kvóta verði frum­varpið að lögum, stofn­aði umrætt útgerð­ar­fé­lag árið 2002 og sat sem stjórn­ar­for­maður þess þar til í lok nóv­em­ber 2013, eða sjö mán­uðum eftir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar.

Eig­in­kona Páls Jóhanns, Guðmunda Krist­jáns­dóttir, tók þá við stöðu stjórn­ar­fomanns hjá Marveri og er hún skráð einn eig­andi að félag­inu í dag, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Creditinfo. Tilkynnt var um breyt­ingu á stjórn félags­ins til fyr­ir­tækja­skrár Rík­is­skatt­stjóra þann 22. nóv­em­ber árið 2013.

Samkvæmt svo­kall­aðri sam­runa­á­ætlun Marvers og félags­ins Dorgs ehf, frá því í des­em­ber 2011, átti Páll Jóhann 90 pró­senta hlut í sam­ein­uðu félagi á þeim tíma. Eig­in­kona hans átti þá tíu pró­senta hlut. Ekki kemur fram í gögnum sem send hafa verið fyr­ir­tækja­skrá hvenær eign­ar­hlutur Páls Jóhanns var færður alfarið yfir til eig­in­konu hans.

Auk þessa á fyrr­greindur þing­maður, Páll Jóhann, og full­trúi Fram­sókn­ar­flokks í atvinnu­vega­nefnd Alþingis, tæp­lega 5 pró­senta hlut í útgerð­ar­fé­lag­inu Vísi í Grinda­vík. En sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið er að fullu í eigu Páls og fjöl­skyldu hans.

Þá má geta þess að bátur í eigu Davíðs Freys Jóns­sonar, sem á sæti í sjáv­ar­út­vegs­nefnd Fram­sókn­ar­flokks­ins, fær úthlutað mak­ríl­kvóta sem met­inn er á 200 millj­ónir króna, sem er þrefalt meiri kvóti en bát­ur­inn veiddi á síð­asta fisk­veiði­ári, verði frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, að lögum. Frétta­blaðið greinir frá þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár