Borgarstjóri segir framkvæmdir Valsmanna ekki hafa áhrif á flugvöllinn

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir að þau fram­kvæmda­leyfi sem gefin hafi verið út á Vals­reitnum svo­kall­aða, teng­ist ein­ungis veglagn­ingu og und­ir­bún­ings­fram­kvæmdum á reitum sem séu utan flug­línu og hafi því hvorki áhrif á Reykja­vík­ur­flug­völl til eða frá. Þetta segir borg­ar­stjóri í sam­tali við Kjarnann og vísar þar með á bug gagn­rýni inn­an­rík­is­ráð­herra á vinnu­brögð borg­ar­innar í mál­inu.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið sendi Reykja­vík­ur­borg bréf í síð­ustu viku þar sem Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra lýsti þeirri afstöðu sinni að það hafi verið „með öllu ótíma­bært að gefa út fram­kvæmda­leyfi og hefja fram­kvæmdir“ á svæði Vals­manna við Hlíð­ar­enda. Ástæðan er sú að fram­kvæmd­irnar, sem séu und­an­fari frek­ari upp­bygg­ingar og bygg­inga­fram­kvæmda í Vatns­mýr­inni, geti ekki átt sér stað nema að skipu­lags­reglum Reykja­vík­ur­flug­vallar, sem heyri undir inn­an­rík­is­ráðu­neytið, sé breytt.

Sakar borgina um að fara fram úr sér


Í bréfi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir einnig að Sam­göngu­stofa hafi til umfjöll­unar mögu­leg áhrif lokun neyð­ar­braut­ar­innar og að Rögnu­nefndin svo­kall­aða, sem kannar mögu­lega flug­vall­ar­kosti, hafi ekki lokið störfum. „Á meðan að nið­ur­stöður nefnd­ar­innar liggja ekki fyrir og ekki hafa verið teknar ákvarð­anir á grund­velli til­lagna hennar verður flug­braut 06/24 [svokölluð neyð­ar­braut] ekki lokað eða aðrar ákvarð­anir teknar sem leiða til þess að flug­brautin verði tekin úr notkun.

Í ljósi fram­an­greindra atrið var með öllu ótíma­bært að gefa út fram­kvæmda­leyfi og hefja fram­kvæmdir á þeim grund­velli. Ráðu­neytið skorar á Reykja­vík­ur­borg að virða gild­andi skipu­lags­reglur og þá stjórn­sýslu­með­ferð sem er í gangi fyrir Sam­göngu­stöfu.“

Seinagangur hjá innanríkisráðuneytinu


Borg­ar­stjóri segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans aðspurður um við­brögð hans við bréfi inn­an­rík­is­ráð­herra að bréfið verði kynnt í borg­ar­ráði í næstu viku og því svarað form­lega í kjöl­farið.

„Borgin fer að sjálf­sögðu að lögum, og vinnur sam­kvæmt gild­andi skipu­lagi í þessu máli einsog öðrum. Þarna eru jafn­framt í gildi samn­ingar sem að sjálf­sögðu ber að virða. Okkur er ljóst að dreg­ist hefur af hálfu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að breyta skipu­lags­reglum vall­ar­ins í sam­ræmi við samn­inga og deiliskipu­lag vall­ar­ins, sem unnið var í sam­ráði við ráðu­neytið. Ég reikna með að leitað verði skýr­inga í því efni og að sjálf­sögðu er þar ekki við borg­ina að sakast,“ segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár