Efnameiri fangar bjóða Fangelsismálastofnun reglulega gjafir

„Það ger­ist reglu­lega að efna­meiri fangar eða aðstand­endur þeirra bjóði Fang­els­is­mála­stofnun hitt og þetta að gjöf, en það er ákaf­lega skýr regla í þessu hjá mér. Ef menn vilja setja pen­inga í fang­els­is­mál, sem er gott, þá eiga þeir að snúa sér að Alþingi sem aftur á að setja þá inn í fjár­lög Fang­els­is­mála­stofn­unar. Við erum ekki að þiggja mútur né þiggja fé með öðrum hætti,“ segir Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar í sam­tali við Kjarnann.

Sögu­sagnir eru á kreiki um að Ólafur Ólafsson, sem afplánar fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm á Kvía­bryggju fyrir aðild sína að Al-Thani mál­inu svo­kall­aða, hafi beitt sér fyrir lagn­ingu ljós­leið­ara í fang­elsið.

„Nei, það er ekki rétt,“ segir for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar í sam­tali við Kjarnann og hlær. „Ég var búinn að heyra þetta og að hann væri líka búinn að kaupa fær­an­legar kennslu­stofur, en þetta er ekki rétt.“

Auk Ólafs, sem oft­ast er kenndur við Samskip, afplána þeir Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri bank­ans í Lúx­em­borg, allir þunga dóma á Kvía­bryggju fyrir aðild sína að Al-Thani flétt­unni.

Aðspurður um hvort Kaup­þingstopp­arnir fyrr­ver­andi hafi reynt að hafa áhrif á aðstöðu í fang­els­inu, segir Páll svo ekki vera. „Þeir hafa ekk­ert boðið, af því að þeir hafa rænu á að það gengur ekki. Hins vegar þegar Árni Johnsen sat inni, þá voru gefin rúm og sitt hvað fleira, en svona ganga hlut­irnir ekki fyrir sig í dag. Við erum von­andi og vænt­an­lega að fá ljós­leið­ara á Kvía­bryggju, en við höfum lengi unnið að því. Auðvitað veit ég ekk­ert hvort ein­hver hafi kippt í ein­hverja spotta vegna þess, en mér er að minnsta kosti ekki kunn­ugt um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár