Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir framgöngu ráðherra vegna Fiskistofu

Umboðs­maður Alþingis segir að yfir­lýs­ingar og bréf Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra til starfs­manna Fiski­stofu, þar sem fram komu áform um flutn­ing stofn­un­ar­innar til Akur­eyrar, hafi ekki verið í sam­ræmi við vand­aða stjórn­sýslu­hætti. Þetta kemur fram í áliti umboðs­manns í til­efni af kvörtun starfs­manna Fiski­stofu til emb­ætt­is­ins vegna ákvörð­unar ráð­herra um að flytja höf­uð­stöðvar Fiski­stofu. Álitið er dag­sett í dag og var til­kynnt máls­að­ilum síð­degis.

Umboðs­maður tekur ekki afstöðu til lög­mætis ákvörð­unar ráð­herra, og hvaða rétt­ar­á­hrif yfir­lýs­ingar og bréf hans um flutn­ing Fiski­stofu kann að hafa á hags­muni starfs­manna stofn­un­ar­innar. Það sé dóm­stóla að meta.

Gagnrýnir ráðherra


Hins vegar segir í áliti umboðs­manns: „Með til­liti til þess eft­ir­lits sem umboðs­manni Alþingis er sam­kvæmt lögum ætlað að hafa með stjórn­sýsl­unni tel ég hins vegar til­efni til að lýsa þeirri afstöðu minni að yfir­lýs­ingar og bréf ráð­herra sem beint var til starfs­manna Fiski­stofu og þar með hvernig staðið var að upp­lýs­inga­gjöf um þetta mál gagn­vart þeim af hálfu ráð­herra, þ.á.m. um hvaða ákvörðun hafi verið tekin í raun um flutn­ing­inn, hafi ekki verið í sam­ræmi við vand­aða stjórn­sýslu­hætti.“

Þá gagn­rýnir umboðs­maður sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra fyrir vinnu­brögð hans í mál­inu. „Þá er það það álit mitt að það hafi ekki sam­rýmst þeim skyldum ráð­herra sem leiða af (lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands, að láta hjá líða að fá um það ráð­gjöf innan ráðu­neyt­is­ins eða með öðrum hætti hvort gild­andi laga­heim­ildir stæðu til þess að ráð­herra gæti tekið ákvörðun um flutn­ing höf­uð­stöðva Fiski­stofu frá Hafn­ar­firði til Akur­eyrar áður en hann kynnti starfs­mönnum Fiski­stofu málið.“

Talar beint til forsætisráðherra


Þá beinir umboðs­maður til­mælum beint til Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. „Ég tel jafn­framt til­efni til þess að vekja athygli for­sæt­is­ráð­herra almennt á því að miðað við þau mál sem ég hef tekið til athug­unar að und­an­förnu virð­ist vera þörf á að huga betur að fram­kvæmd þess­arar laga­reglu innan Stjórn­ar­ráðs Íslands.“

Að lokum mælist umboðs­maður Alþingis til þess, á meðan beðið er afstöðu Alþingis til máls­ins, „að ráð­herra geri starfs­mönnum Fiski­stofu form­lega grein fyrir stöðu þess nú og hvers þeir megi vænta um fram­haldið. Jafn­framt mælist ég til þess að fram­vegis verði betur hugað að þeim sjón­ar­miðum sem rakin eru í álit­inu um und­ir­bún­ing mála og skyldu ráð­herra til að leita ráð­gjafar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár