Slökkvilið gerði alvarlegar athugasemdir við brunavarnir í félagsmiðstöð í Kópavogi

Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins gerði á dög­unum alvar­legar athuga­semdir við bruna­varnir í félags­mið­stöð­inni Igló, sem er til húsa hjá Snæ­lands­skóla í Kópavogi. Ráðist var í óreglu­lega eld­varna­skoðun hjá félags­mið­stöð­inni eftir að slökkvi­lið­inu barst ábend­ing frá for­eldra úr hverf­inu. Um er að ræða glugga­laust kjall­ara­rými sem ekki var hannað undir félags­mið­stöð.

Í skoð­un­ar­skýrsl­unni, sem Kjarninn hefur undir höndum, eru gerðar athuga­semdir við aðgengi að flótta­leið, sem var falin bak­við tjald og hús­gögn, og að svæði milli tjalds­ins og eld­varna­hurðar hafi verið nýtt sem geymsla þar sem komið hafði verið fyrir brenn­an­legu dóti.

Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins taldi umtals­verða ágalla á bruna­vörnum mann­virk­is­ins, sem er næst hæsta stig af fjórum. Alvar­legir ágallar er hæsta stigið sem slökkvi­liðið notar til að lýsa stöðu bruna­varna hverju sinni.

Skoð­un­ar­skýrslan var send Snæ­lands­skóla og skóla­stjórn­endum veittur eins dags frestur til að hlíta til­mælum slökkvi­liðs­ins um við­eig­andi úrbætur.

Í sam­tali við Kjarnann segir Alfons S. Krist­ins­son, skoð­un­ar­mað­ur­inn hjá Slökkvi­liðið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem ann­að­ist úttekt­ina á bruna­vörnum hús­næð­is­ins, að dag­inn eftir að kraf­ist var úrbóta hafi for­ráða­maður félags­mið­stöðv­ar­innar sent ljós­myndir í tölvu­póst sem stað­festu að brugð­ist hafði verið við til­mælum slökkvi­liðs­ins.

Þá segir Alfons að almennt séu bruna­varnir í góðu lagi hjá skólum og félags­mið­stöðvum í Kópavogi, en slökkvi­lið fram­kvæmir reglu­bundið eft­ir­lit með bruna­vörnum hjá þessum aðilum á hverju hausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár