Hæstiréttur kveður upp dóm í Arum-málinu í dag

Dóms­upp­saga varð­andi ómerk­ing­ar­kröfu rík­is­sak­sókn­ara í Aurum-mál­inu svo­kall­aða fer fram í Hæsta­rétti í dag, nánar til­tekið klukkan 16:00.

Í mál­inu eru Lárus Welding, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis, og Magnús Arnar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, sak­aðir um umboðs­svik og þeir Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi bank­ans, og Bjarni Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóri Glitnis, voru ákærðir fyrir hlut­deild í þeim meintu brotum.

Málið snýst um sex millj­arða króna lán sem Glitnir veitti félag­inu FS38 til kaupa á hlut Fons, félags í eigu Pálma Har­alds­sonar, í skart­gripa­keðj­unni Aurum Holdings. Jón Ásgeir er sak­aður um að hafa beitt stjórn­endur Glitnis þrýst­ingi til að veita umrætt lán, og hann hafi sjálfur fengið einn millj­arð króna af upp­hæð­inni í sinn hlut.

Fjöl­skip­aður Hér­aðs­dómur sýkn­aði sak­born­ing­ana þann 5. júní síð­ast­lið­inn. Rík­is­sak­sókn­ari áfrýj­aði nið­ur­stöð­unni til Hæsta­réttar og krafð­ist þess að sýknu­dóm­ur­inn yrði ómerktur sökum þess að Sverrir Ólafsson, fjár­mála­verk­fræð­ingur, hafi verið van­hæfur til að vera með­dóm­ari í mál­inu. Umræddur Sverrir er bróðir Ólafs Ólafs­sonar, kenndur við Samskip, sem hlaut þungan fang­els­is­dóm í Al-Thani mál­inu.

Aðal­með­ferð í Hæsta­rétti vegna Aurum-máls­ins ein­skorð­að­ist við ómerk­ing­ar­kröfu rík­is­sak­sókn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár