Lögreglan vill kaupa meira en 300 byssur á næstu tveimur árum

Rikis­lög­reglu­stjóri leggur til að 313 ný skot­vopn verði keypt á þessu ári og því næsta, 163 skamm­byssur og 150 hríð­skota­byssur, til að efla við­bún­að­ar­getu lög­reglu með hraði. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í níu blað­síðna grein­ar­gerð um efl­ingu við­bún­aðar lög­regl­unnar og send hefur verið Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra.

Undir grein­ar­gerð­ina skrifa þrír stjórn­endur hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, Jón F. Bjartmarz, yfir­lög­reglu­þjónn, Guð­mundur Ó. Þrá­ins­son, aðstoð­ar­yfr­lög­reglu­þjónn hjá sér­sveit­inni, og Ásgeir Karlsson, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra.

Í grein­ar­gerð­inni er vitnað til skýrslu inn­an­rík­is­ráð­herra um stöðu lög­regl­unnar frá árinu 2012, þar sem kemur meðal ann­ars fram að bún­aður lög­reglu til þess að takast á við sér­stakar lög­reglu­að­gerðir vegna vopna­mála, hryðju­verka og ann­arra stór­felldra ofbeld­is­glæpa sé mjög tak­mark­aður. Bún­að­ur­inn sem til sé þarfn­ist að mestu end­ur­nýj­unar og við­bún­að­ar­geta lög­reglu, hvað varðar fyrstu við­brögð og vegna öryggis rík­is­ins, sé óvið­un­andi.

Tvær hríðskotabyssur á hverja lögreglustöð


Grein­ar­gerð­ar­höf­undar fagna því að auknu fjár­magni hafi verið varið til þjálf­unar lög­reglu­manna og til að efla búnað á síð­asta ári, en betur þurfi ef duga skal. „Til staðar þurfa að vera að lág­marki á hverri lög­reglu­stöð tvær skamm­byssur, tveir MP5 (hríð­skotariflar), tvö aðgerð­ar­skot­vesti, tveir skot­skýl­ing­ar­hjálmar og skot­skýl­ing­ar­skjöldur til þess að bregð­ast við vopna­málum. Almenna lög­reglan sinnir fyrstu við­brögðum og ófor­svar­an­legt er að senda óvopn­aða lög­reglu­menn í slík verk­efni. Lög­reglu­stöðvar eru 35 þannig að þörfin er að lág­marki 70 sett.“

Samkvæmt grein­ar­gerð­inni er heild­ar­kostn­aður við að full­búa lög­reglu­mann um 1,2 millj­ónir króna, að með­töldum vopnum. „Keyptur hefur verið hlífð­ar­bún­aður fyrir 72 lög­reglu­menn sem er for­senda þess að hægt sé að vopna almennu lög­regl­una til þess að sinna hlut­verki sínu við fyrstu við­brögð vegna vopna­mála, hryðju­verka, stór­felldra ofbeld­is­glæpa og ann­arra atvika sem ógna öryggi lands­ins.“

Samkvæmt grein­ar­gerð­inni mun lög­regla í lok árs 2016 hafa aflagt 196 skamm­byssur frá árinu 2006, og 28 hríð­skota­byssur á sama tíma­bili, þar sem skot­vopnin eru útrunn­inn. Þá mun lög­regla í lok næsta árs sömu­leiðis hafa aflagt 67 sjálf­virka og hálf sjálf­virka riffla og hagla­byssur frá árinu 2006. Til að bregð­ast við þessu er lagt til í grein­ar­gerð­inni að 313 ný skot­vopn verði keypt á þessu ári og því næsta, auk þess sem hlífð­ar­bún­aður lög­reglu verði end­urýj­aður. Þá sé marg­vís­legur bún­aður sér­sveitar rík­is­lög­reglu­stjóra úr sér geng­inn, sé jafn­vel ára­tuga gam­all, og þarfn­ist end­ur­nýj­unar og kaupa þurfi nýjan búnað eins og næt­ur­sjónauka, öfl­ugan skot­skýl­ing­ar­búnað og fleira.

„Sú skipan sem tekin hefur verið upp varð­andi árlega aðgerða­þjálfun almennra lög­reglu­manna er mikið fram­fara­spor og tryggðar hafa verið fjár­veit­ingar til þess að sinna því verk­efni með nokkuð ásætt­an­legum hætti. Hins vegar er staðan varð­andi sér­búnað lög­reglu ófull­nægj­andi til þess að tryggja öryggi lög­reglu­manna og um leið við­bún­að­ar­getu lög­regl­unnar til þess að fást við vopnuð lög­reglu­störf. Því er lagt til að hraðað verði við­bún­að­ar­upp­bygg­ingu lög­regl­unnar. Veittar verði auknar fjár­veit­ingar til þess að end­ur­nýja og bæta sér­búnað hennar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár