Jón Atli Benediktsson hafði betur í rektorskjöri Háskóla Íslands

Jón Atli Bene­dikts­son, pró­fessor í raf­magns- og tölvu­verk­fræði, hlýtur til­nefn­ingu til emb­ættis rekt­ors Háskóla Íslands, en hann hafði betur í bar­átt­unni um rekt­ors­stöð­una við Guðrúnu Nordal í annarri umferð rekt­ors­kjörs­ins.

Jón Atli hlaut 54,8 pró­sent greiddra atkvæða í seinni umferð­inni, og Guðrún Nordal 42,6 pró­sent. Á kjör­skrá voru 14.345, þar af 1.486 starfs­menn og 12.859 stúd­entar. Við kosn­ingar greiddu atkvæði alls 1.284 starfs­menn eða 86,4 pró­sent á kjör­skrá og 6.271 stúd­ent eða 48,8 pró­sent á kjör­skrá. Alls greiddu 7.555 atkvæði og var því kosn­inga­þátt­taka í heild 52,7 pró­sent.

Fyrri umferð rekt­ors­kosn­inga fór fram 13. apríl síð­ast­lið­inn og urðu úrslit á þá leið að Jón Atli Bene­dikts­son hlaut 48,9 pró­sent greiddra atkvæða, Guðrún Nordal 39,4 pró­sent og Einar Stein­gríms­son, stærð­fræð­ingur og pró­fessor við Uni­versity of Strathclyde í Glasgow, 9,7 pró­sent greiddra atkvæða. Tvö pró­sent atkvæða­seðla voru auðir.

Þar sem eng­inn fram­bjóð­enda hlaut meiri­hluta greiddra atkvæða eins og reglur fyrir Háskóla Íslands kveða á um var kosið að nýju milli Guðrúnar og Jóns Atla í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár