Svavar Halldórsson nýr framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans mun Svavar Hall­dórs­son, fyrr­ver­andi frétta­maður á RÚV og Stöð 2, taka við stöðu fram­kvæmda­stjóra hjá Lands­sam­tökum sauð­fjár­bænda á morgun.

Þórarinn Ingi Pét­urs­son, for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda, segir í sam­tali við Kjarnann, að stjórn sam­tak­anna hafi ákveðið að setja sig í sam­band við Svavar til að bjóða honum fram­kvæmda­stjóra­stöð­una fljót­lega eftir að Sigurður Eyþórs­son lét af störfum sem fram­kvæmda­stjóri þeirra þann 1. apríl síð­ast­lið­inn, og samn­inga­við­ræður hafi gengið vel.

„Þetta er bara maður sem hefur áhuga á íslenskum mat og hefur til að mynda skrifað bækur og fram­leitt sjón­varps­þætti um áhuga­mál sitt. Ég hafði nú bara hitt hann einu sinni áður en við ákváðum að hafa sam­band við hann, en mér fannst hann hafa spenn­andi hug­myndir þannig að ég ákvað bara að slá á þráð­inn til hans og kanna hvort kall væri til,“ segir for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda í sam­tali við Kjarnann, aðspurður um ákvörðun sam­tak­anna að fal­ast eftir starfs­kröftum Svavars Hall­dórs­sonar.

Vilja markaðssetja lambakjötið enn frekar


Þórarinn Ingi segir stjórn sam­tak­anna hafa miklar vænt­ingar til sam­starfs­ins við frétta­mann­inn fyrr­ver­andi. „Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að við erum stans­laust að velta fyrir okkur hvernig við getum mark­aðs­sett lamba­kjötið betur fyrir neyt­and­anum, og teljum Svavar vera mjög efni­legan mann til þess að auka hróður lamba­kjöts­ins enn frekar.“

Frá því að Svavar lét af störfum sem frétta­maður hjá RÚV í mars­mán­uði árið 2013, hefur hann rekið fyr­ir­tækið sitt Íslenskur matur og mat­ar­menn­ing. Fyr­ir­tækið fram­leiðir sjón­varps­þætti og annað fjöl­miðla­efni, sinnir almanna­tengslum og ráð­gjöf, auk þess að reka heil­sölu og net­verslun.

Svavar hefur átt sæti í stjórnum Félags Frétta­manna á RÚV sem og Blaða­manna­fé­lags Íslands og var um tíma flokks­bundin sjálf­stæð­is­maður. Þá gegndi hann stöðu for­manns hjá Stefni - félagi ungra sjálf­stæð­is­manna í Hafn­ar­firði á sínum yngri árum. „Haraldur Bene­dikts­son er nú sjálf­stæð­is­maður líka,“ segir Þórarinn og hlær. „Menn þurfa ekk­ert endi­lega að vera fram­sókn­ar­menn til að vinna fyrir sauð­fjár­bændur. Ég er ekk­ert að spá í neina póli­tík í þessu, enda á hún ekki að skipta máli í þessu verk­efni,“ segir for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár