Ritstjóri Vísis fjarlægði frétt um heimilisofbeldi í rúma viku án skýringa

Rit­stjórn Vísis fjar­lægði frétt af frétta­vef­síðu sinni í rúma viku, þar sem rit­höf­und­ur­inn Bergljót Arnalds brást við yfir­lýs­ingu fyrr­ver­andi eig­in­manns síns um að hún hafi borið á hann rangar sakir um að hafa beitt hana heim­il­is­of­beldi. Rit­stjórn Vísis svar­aði hvorki fyr­ir­spurnum Berg­ljótar né Kvenna­at­hvarfs­ins um af hverju fréttin var fjar­lægð. Þá var ekk­ert sam­ráð haft við blaða­mann­inn sem skrif­aði frétt­ina áður en hún var fjar­lægð.

Eftir að hafa fengið ábend­ingar um að fréttin væri horfin af vef­síðu Vísis leit­aði Bergljót skýr­inga hjá Kristínu Þor­steins­dóttur, útgef­anda og aðal­rit­stjóra 365, í tvígang með tölvu­pósti. Tölvu­póst­unum var aldrei svarað, en Kjarninn hefur þá undir höndum. Þá hefur Kjarninn fengið stað­fest að starfs­kona hjá Kvenna­at­hvarf­inu hafi sömu­leiðis sent rit­stjórn Vísis fyr­ir­spurn um hvarf frétt­ar­innar í tölvu­pósti. Þeirri fyr­ir­spurn var heldur ekki svarað.

Ásakanir gengið á báða bóga


Forsögu máls­ins má rekja til við­tals við Berg­ljótu í Stund­inni, þar sem hún greinir frá heim­il­is­of­beldi sem hún seg­ist hafa orðið fyrir meðal ann­ars af hálfu fyrr­ver­andi eig­in­manns síns og barns­föð­urs. Í kjöl­farið birt­ist sam­bæri­legt við­tal við Berg­ljótu á mbl.is. Lögmaður manns­ins sendi svo frá sér yfir­lýs­ingu þar sem ásök­unum Berg­ljótar er vísað á bug og þær sagðar upp­spuni og engin gögn styðji frá­sögn hennar.

Frétta­vef­ur­inn Vísir birti frétt undir fyr­ir­sögn­inni: „Segir fyrrum eig­in­mann rústa mann­orði sínu með lygum,“ þann 18. mars síð­ast­lið­inn. Í frétt­inni brást Bergljót við ásök­unum fyrr­ver­andi eig­in­manns síns. Þar kveðst hún nauð­beygð til að svara, bæði til að verja mann­orð sitt en einnig vegna bar­átt­unnar gegn heim­il­is­of­beldi. Þá er meðal ann­ars vitnað til áverka­vott­orðs og tölvu­pósts í frétt­inni, þar sem fyrr­ver­andi eig­in­maður og barns­faðir Berg­ljótar segir: „Ég mun aldrei leggja á þig hendur aftur.“ Umrædd frétt var síðar fjar­lægð fyr­ir­vara­laust af vef­síðu Vísis þann 20. mars.

„Nógu erfitt að stíga fram“


Eftir að fréttin var tekin niður leit­aði Bergljót skýr­inga hjá Kristínu Þor­steins­dóttur, útgef­anda og aðal­rit­stjóra 365. Póst­ur­inn var sendur 25. mars síð­ast­lið­inn, en þar skrifar Bergljót meðal ann­ars: „Ég veit ekki hvað veldur en vona að ekki sé það vegna óska við­kom­andi manns. Nógu erfitt er fyrir konur að kæra ofbeld­is­mann sinn, hvað þá að stíga fram með þessi per­sónu­legu og við­kvæmu mál þótt ofbeld­is­mað­ur­inn kom­ist ekki upp með það átölu­laust að þagga niður í þeim sem talar með nafn­lausri yfir­lýs­ingu sem er byggð á róg­burði og lygum. Fréttin er í því ljósi gríð­ar­lega mik­il­væg.“

Ekkert svar barst Berg­ljótu frá aðal­rit­stjóra 365, en fréttin fór aftur í loftið 29. mars. Í milli­tíð­inni hafði starfs­kona frá Kvenna­at­hvarf­inu sent tölvu­póst á net­fang rit­stjórnar til að for­vitn­ast um frétt­ina þann 27. mars.

Í sam­tali við Kjarnann segir Bergljót að eftir að fréttin var sett inn í annað skiptið hafi ekki verið hægt að leita að henni á leit­ar­síðum eins og til að mynda Google, og ekki heldur í gegnum innri leit á vef­síðu Vísis. Þá sendi Bergljót annan tölvu­póst á Kristínu Þor­steins­dóttur, dag­settan 31. mars, þar sem segir: „Mér finnst þessi vinnu­brögð fyrir neðan allar hellur og mjög alvar­leg. Ég krefst skýr­inga og ég krefst þess að fréttin verði gerð finn­an­leg á leit­ar­síðum. Þá vil ég óska eftir að Vísir sendi frá sér til­kynn­ingu þar sem beðist er vel­virð­ingar á þeim mis­tökum að taka frétt­ina niður í heila viku skömmu eftir að hún birt­ist og þar sem mis­tökin eru hörmuð.“

Sem fyrr barst ekk­ert svar Berg­ljótu frá aðal­rit­stjóra 365, en Kolbeinn Tumi Daðason aðstoð­ar­rit­stjóri 365, hafði sam­band við hana sím­leiðis til að greina frá sjón­ar­miðum rit­stjórnar Vísis og biðja hana afsök­unar í kjöl­far þess að hún fjall­aði um málið á Facebook-síðu sinni þann 9. apríl síð­ast­lið­inn.

Ekkert samráð haft við blaðamanninn


Jakob Bjarnar Grét­ars­son, blaða­mað­ur­inn sem skrif­aði frétt­ina, segir aðspurður í sam­tali við Kjarnann að hann hafi unnið frétt­ina og við­talið við Berg­ljótu eftir bestu sam­visku. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við hann þegar fréttin var tekin niður og þannig málið honum óvið­kom­andi. Jakob óskaði eftir því að frek­ari fyr­ir­spurnum yrði beint til rit­stjóra.

Kjarninn sendi Kristínu Þor­steins­dóttur fyr­ir­spurn vegna máls­ins í tölvu­pósti á föstu­dag­inn, sem ekki hefur verið svarað. Í skrif­legu svari Kolbeins Tuma aðstoð­ar­rit­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans segir: „Athuga­semdir voru gerðar við frétt­ina sem voru þess eðlis að við töldum ástæðu til þess að taka þær til skoð­unar. Á meðan sú skoðun stóð yfir tókum við frétt­ina úr birt­ingu. Þegar við höfðum gengið úr skugga um að fréttin væri í lagi birtum við hana á ný. Auðvitað hefðum við viljað að skoð­unin hefði tekið skemmri tíma en raun bar vitni og biðjum við Berg­ljótu afsök­unar á því.“

Aðspurður um hver hafi sent umræddar athuga­semdir, hvers eðlis þær hafi verið og hvernig þær hafi verið sann­reyndar, svar­aði Kolbeinn Tumi: „Við ætlum ekk­ert að fara nánar í verk­lag inn­an­húss vegna þess­arar fréttar. Vísa bara í fyrra svar vegna fyr­is­p­urn­ar­innar.“

Eftir að Kjarninn fór að graf­ast fyrir um málið, sendi aðstoð­ar­rit­stjóri 365, Berg­ljótu Arnalds orð­send­ingu í gegnum skila­boða­þjón­ustu Facebook. Þar sem hún er aftur beðin afsök­unar á mál­inu og það harmað að það hafi tekið rúma viku að setja frétt­ina aftur í loftið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár