Aðalritstjóri 365 til varnar Fréttablaðinu: „Dagblað segir fréttir“

Kristín Þor­steins­dóttir, útgef­andi og aðal­rit­stjóri 365 miðla, skrifar leið­ara í Frétta­blaðið í dag undir fyr­ir­sögn­inni „Dagblað segir fréttir.“ Með skrifum sínum vill Kristín bregð­ast við við­brögðum sem tvær nýlegar fréttir Frétta­blaðs­ins hafa fengið.

Sú fyrri lýtur að full­yrð­ingum Guðjóns St. Mart­eins­sonar hér­aðs­dóm­ara um að Ólafur Þór Hauksson sér­stakur sak­sókn­ari hafi vitað af ætt­ar­tengslum með­dóm­ara Guðjóns í mál­inu við Ólaf Ólafsson, sem hlaut þungan fang­els­is­dóm í Al-Thani mál­inu, við aðal­með­ferð Aurum-máls­ins. Full­yrð­ingar Guðjóns stang­ast á við ummæli sér­staks sak­sókn­ara sem seg­ist ekki hafa verið kunn­ugt um ætt­ar­tengslin og hefur farið fram á sýknu­dómur yfir sak­born­ingum í Aurum-mál­inu verði ómerktur sökum þeirra. Krafa sér­staks sak­sókn­ara verður tekin fyrir í Hæsta­rétti í vik­unni.

Eftir að Hæsti­réttur stað­festi nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að meina verj­endum í Aurum-mál­inu að kalla dóm­ara máls­ins í hér­aði til skýrslu­töku til að verj­ast ómerk­ing­ar­kröfu sér­staks sak­sókn­ara, skrif­aði aðal­rit­stjóri 365 leið­ara í Frétta­blaðið sem vakti mikla athygli. Þar skrifar Kristín: „Það er nauð­syn­legt að upp­lýsa hvort sér­stakur sak­sókn­ari laug þegar hann sagð­ist ekki hafa vitað um tengsl Sverris og Ólafs Ólafs­sona. Nið­ur­staða Hæsta­réttar er óboð­leg og má ekki vera enda­hnútur þessa máls. Nú taka fjöl­miðlar við.“ Niðurlag leið­ar­ans vakti óneit­an­lega athygli, enda Jón Ásgeir Jóhann­es­son, eig­in­maður Ingi­bjargar Pálma­dóttur aðal­eig­anda 365, á meðal sak­born­inga í Aurum-mál­inu.

Vísar gagnrýni á bug


Þá bregst Kristín sömu­leiðis við gagn­rýni sem fram hefur komið á for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins í vik­unni í leið­ar­anum sem birt­ist í dag, þar sem Ingi­björg Krist­jáns­dóttir eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar full­yrti að dómur Hæsta­réttar yfir eig­in­manni hennar væri byggður á mis­skiln­ingi.

„Frétta­blaðið tók enga afstöðu í þessu máli, frekar en öðrum, heldur vann frétt upp úr grein Ingi­bjargar, og reyndi eftir fremsta megni að afla gagna um hvort ávirð­ingar hennar væru á rökum reistar. Svo reynd­ist vera. Er það ekki frétt?“ spyr Kristín í leið­ar­anum.

Þá vísar Kristín í nýlegt bak­her­bergi Kjarnans í skrifum sínum, þar sem þeirri spurn­ingu var velt upp hvort það væri rétt­ar­morð þegar banka­menn væru dæmdir í fang­elsi og sömu­leiðis merk­ingu ummæla hennar um að „nú taki fjöl­miðlar við“ í ljósi stöðu hennar og eign­ar­halds fjöl­miðla­sam­steypunnar sem hún stýrir.

„Ef farið er að leik­reglum og vandað til verka þá er það auð­vitað ekki rétt­ar­morð,“ skrifar aðal­rit­stjóri 365. „Fjöl­miðlum ber skylda til að segja frá því þegar máls­með­ferð eða fram­göngu vald­hafa í opin­berum málum er ábóta­vant. Þess vegna er það frétt þegar hér­aðs­dóm­ari sakar sak­sókn­ara um lygar, og þegar í ljós kemur að Hæsti­réttur hefur farið manna­vilt. Í slíkum frá­sögnum fel­ast engar ásak­anir um rétt­ar­morð. Frétta­blaðið tekur enga afstöðu til þess, heldur gegnir því hlut­verki sem fjöl­miðlar eiga að gegna. Að segja fréttir og veita vald­höfum opin­bers valds aðhald. Aðrir geta svo dregið sínar álykt­anir.“

Þá skrifar Kristín: „Sumum er tamt að reyna að lesa sér­staka fyr­ir­ætlan eða til­gang úr frétta­flutn­ingi. Þá er gjarnan rýnt í for­tíð fólks. Hvar hefur það unnið, hverjir eru vinir þess, hvaða flokk kýs það? Morg­un­blaðið fellur í þessa gryfju. Margur heldur mig sig. Frétta­blaðið getur full­vissað les­endur um að það er ekki á neinni slíkri veg­ferð. Það segir fréttir, allar fréttir ekki bara sumar, og reynir að hafa þær sannar, hlut­lausar og upp­lýsandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár