Sigmundur Davíð boðar áætlun um losun hafta fyrir lok vorþings

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gerði fjár­magns­höftin að umfjöll­un­ar­efni í ræðu sinni á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins sem nú stendur yfir. Þar sagði hann að áætlun um losun hafta verði hrint í fram­kvæmd áður en yfir­stand­andi vor­þingi lýkur.

Í ræðu sinni sagði for­sæt­is­ráð­herra: „Á meðan und­ir­bún­ingur fyrir losun hafta hefur staðið yfir hafa stjórn­völd beðið þess að sjá hvort slita­búin legðu fram raun­hæfa áætlun um nauða­samn­inga. Áætlun þar sem tekið yrði til­lit til hags­muna íslensks almenn­ings og sýnt fram á að efna­hags­legum stöð­ug­leika yrði ekki ógnað. Það er ekki óeðli­legt að gera slíka kröfu enda ómögu­legt fyrir stjórn­völd að losa höftin fyrr en menn hafa vissu fyrir því, að lífs­kjörum þjóð­ar­innar verði ekki stefnt í voða.“

Fyrst þurfti að skýra afstöðu til aðildar að Evrópusambandinu


Sig­mundur Davíð sagði að framan af hafi stefna kröfu­haf­anna miðað að því að bíða þess að Ísland gengi í Evr­ópu­sam­bandið. „Mark­miðið var upp­taka evru með fyr­ir­greiðslu frá Evrópska seðla­bank­anum til að borga kröfu­hafa út. Slíkt hefði verið efna­hags­legt glapræði enda gefur evr­ópski seðla­bank­inn ekki aðild­ar­lönd­unum ókeypis pen­inga. Hingað hefðu sjálf­sagt borist allar þær evrur sem þörf hefði verið á til að borga út alla kröfu­hafa og alla snjó­hengj­una ekki aðeins á fullu verði heldur á því yfir­verði sem felst í því að papp­írs­hagn­aður kröfu­hafa væri fjár­magn­aður af íslenskum almenn­ingi með lán­töku.“

Þá sagði for­sæt­is­ráð­herra í ræðu sinni að ekki hafi verið hægt að stíga næstu skref við losun fjár­magns­hafta fyrr en afstaða rík­is­stjórn­ar­innar til aðildar að Evr­ópu­sam­band­inu yrði skýrð.

„Eftir að und­ir­bún­ings­vinnu sér­fræð­ing­anna lauk og tekið var fyrir Evr­ópu­sam­bands­leið­ina var full­trúum slita­bú­anna og vog­un­ar­sjóð­anna til­kynnt að ekki væri hægt að bíða lengur. Engin raun­hæf lausn hefur komið úr þeirri átt. Það er því ekki um annað að ræða en að hrinda í fram­kvæmd áætlun um losun hafta nú áður en þingið lýkur störfum. Sér­stakur stöð­ug­leika­skattur mun þá skila hund­ruðum millj­arða króna og mun ásamt öðrum aðgerðum gera stjórn­völdum kleift að losa um höft án þess að efna­hags­legum stöð­ug­leika verði ógnað. Það er ekki hægt að una því lengur að íslenska hag­kerfið sé í gísl­ingu óbreytts ástands og eign­ar­hald á fjár­mála­kerfi lands­ins í því horfi sem það er.“

Út frá orðum Sig­mundar Davíðs má því reikna með að von sé á málum fyrir Alþingi á yfir­stand­andi vor­þingi, sem miði að losun fjár­magns­hafta. Reiknað er með að vor­þingi ljúki í maí og því má búast við veiga­miklum tíð­indum í þessum efnum á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár