Sigmundur Davíð: „Grípa þarf til varna fyrir Reykjavíkurflugvöll“

„Nú má öllum vera ljóst að grípa þarf til varna fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl og koma í veg fyrir að borg­ar­yf­ir­völd grafi stöðugt undan flug­vell­inum og beiti brögðum til að losna við hann.“ Þetta sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í ræðu sinni á flokks­þingi Fram­sókn­ar­manna sem nú stendur yfir.

Hjartað í Vatns­mýr­inni, sem eru gras­rót­ar­sam­tök sem berj­ast gegn því að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði fluttur, sendu á dög­unum bréf á Alþing­is­menn og Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra, þar sem fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir Vals­manna við norð­ur­enda NA/SV brautar flug­vall­ar­ins, svo­kall­aðrar neyð­ar­brautar, eru harð­lega gagn­rýndar.

Biðlað til Alþingismanna

Í bréf­inu segir: „Sú fram­kvæmd, sem er dyggi­lega studd af meiri­hluta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur er fyrsta skrefið að lokun Reykja­vík­ur­flug­vallar. Allt tal um að þetta sé ein­ungis fram­kvæmda­vegur og þess háttar er ein­ungis til að reyna að slá ryki í augu fólks. Reykja­vík­ur­borg er full­kunn­ugt um, að lokun þess­arar brautar er reið­ar­slag fyrir flug­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vallar, en meiri­hlut­inn lætur það sig engu varða, þar sem bygg­ing­ar­hags­munir Vals­manna virð­ast skipta þá meira máli.“

Þá hvetja sam­tökin til þess að skipu­lags­valdið verði tekið af borg­ar­yf­ir­völdum, sem fari gegn vilja meiri­hluta þjóð­ar­innar sem vilji hafa flug­völl­inn áfram í Vatns­mýr­inni, og komið verði í veg fyrir óaft­ur­kræfar fram­kvæmdir Vals­manna.

„Það er vit­an­lega verk­efni Alþingis og rík­is­stjórnar að finna leið út úr þessum vanda sem virð­ist stafa af því að sveit­ar­fé­lag telur sig geta boðið almanna­hags­munum birg­inn í krafti skipu­lags­heim­ildar þess. Samt er það rík­is­valdið sem fer með end­an­legt skipu­lags­vald. Dæmi eru um það erlendis, að skipu­lag til­tek­inna svæða eða mann­virkja sé fært beint undir skipu­lags­vald rík­is­ins vegna örygg­is­hags­muna. Sama á jafn­framt við hér á landi um Kefla­vík­ur­flug­völl. Með vísan til þeirrar óheilla­þró­unar sem átt hefur sér stað varð­andi skipu­lag Reykja­vík­ur­flug­vallar hlýtur að vera athug­andi að færa skipu­lag Reykja­vík­ur­flug­vallar og eftir atvikum ann­arra mann­virkja og/eða svæða beint undir skipu­lags­vald rík­is­ins.“

Ekki er annað að heyra en að for­sæt­is­ráð­herra taki í sama streng og sam­tökin Hjartað í Vatns­mýr­inni með ummælum sínum í ræðu sinni á flokks­þingi Fram­sókn­ar­manna í dag. Þá hyggst Þór­hallur Hösk­ulds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, mæla fyrir frum­varpi þar sem kveðið er á um að ríkið fari með skipu­lags­vald á alþjóða­flug­völlum lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár