Sigmundur Davíð segir vogunarsjóði hafa keypt hagsmunagæslu hér á landi fyrir 18 milljarða

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í ræðu sinni á flokks­þingi Fram­sókn­ar­manna, sem hófst í dag, að erlendir vog­un­ar­sjóðir hafi keypt sér hags­muna­gæslu á Íslandi fyrir 18 millj­arða króna.

Í yfir­lits­ræðu sinni fór for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins yfir árang­ur­inn á kjör­tíma­bil­inu, og gerði losun fjár­magns­hafta að umfjöll­un­ar­efni og sagði að stærsta hindr­unin við losun hafta væri hin óupp­gerðu slitabú föllnu bank­anna. Þá boð­aði for­sæt­is­ráð­herra að fram­kvæmd um losun fjár­magns­hafta verði hrint í fram­kvæmd áður en yfir­stand­andi vor­þingi lýkur.

Í stöðugri hagsmunagæslu


Sig­mundur Davíð sagði að langstærstur hluti krafn­anna í búin sé í eigu erlendra vog­un­ar­sjóða, sem hafi keypt þær á bruna­út­sölu eftir fall bank­anna, og þeir hafi varið miklum fjár­munum í að verja hags­muni sína hér á landi sem gætu numið allt að 2.500 millj­örðum króna.

„Það er þekkt að flestar, ef ekki allar, stærri lög­manns­stofur lands­ins hafa unnið fyrir þessa aðila eða full­trúa þeirra. Það er leitun að almanna­tengsla-fyr­ir­tæki sem starfar á Íslandi og hefur ekki verið í þjón­ustu sömu aðila auk fjölda ráð­gjafar á hinum ýmsu sviðum,“ sagði Sig­mundur Davíð í ræðu sinni.

„Umsvifin eru nán­ast óhugna­leg og ómögu­legt er að segja til um hversu langt þau ná, en nýlegar fréttir herma að kröfu­hafar hafi keypt hags­muna­gæslu hér á landi fyrir 18 millj­arða króna á und­an­förnum árum. Við vitum að full­trúar kröfu­haf­anna hafa tekið saman per­sónu­legar upp­lýs­ingar um stjórn­mála­menn, blaða­menn og aðra sem hafa tjáð sig um þessi mál eða telj­ast lík­legir til að geta haft áhrif á gang mála. Og í sumum til­vikum hafa verið gerðar sál­grein­ingar á fólki til að átta sig á því hvernig best sé að eiga við það.“

Þá full­yrti for­sæt­is­ráð­herra í ræðu sinni að reglu­lega séu skrif­aðar svo­kall­aðar leyni­skýrslur hér­lendis fyrir kröfu­haf­ana þar sem „... veittar eru upp­lýs­ingar um gang mála á Íslandi, í stjórn­mál­unum, opin­berri umræðu, fjár­mála­kerf­inu og svo fram­vegis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár