Starfsmenn Fiskistofu greiddu hátt í milljón fyrir fjölmiðlaráðgjöf

Starfs­menn Fiski­stofu í Hafn­ar­firði réðu almanna­tengsla­fyr­ir­tækið Athygli til að aðstoða sig í bar­átt­unni gegn ákvörðun Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um að flytja stofn­un­ina til Akur­eyrar. Kostn­aður vegna ráð­gjaf­ar­innar hljóð­aði upp á um 900 þús­und krónur, og var greiddur af stétt­ar­fé­lagi.

„Í þeirri orra­hríð og óvissu sem við starfs­menn Fiski­stofu vorum í eftir yfir­lýs­ingar og bréf ráð­herra til okkar síð­ast­liðið haust, kom fram sú hug­mynd meðal okkar að leita til almanna­tengsla­fyr­ir­tækis til að leið­beina okkur og aðstoða við að koma sjón­ar­miðum okkar með skipu­legum og mark­vissum hætti á fram­færi við Alþingi, ráðu­neyti og fjöl­miðla. Ástæðan var ein­fald­lega sú að við átt­uðum okkur á því að þessi þekk­ing var, að okkar áliti, ekki til staðar í hópnum,“ segir Guð­mundur Jóhann­es­son, deild­ar­stjóri veiði­eft­ir­lits­sviðs Fiski­stofu, í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Leiðbeint hvernig bera ætti sig að


Guð­mundur segir að leitað hafi verið eftir fjöl­miðla­ráð­gjöf­inni í októ­ber, og hún hafi staðið fram í des­em­ber. Í henni fólust fund­ar­höld með starfs­mönnum, þar sem þeim var meðal ann­ars leið­beint um hvernig bera ætti sig að við að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi, hvenær ætti að bregð­ast við og hvernig. Hann segir að starfs­manna­fé­lag Fiski­stofu hafi enga aðkomu haft að mál­inu.

„Starfs­menn Fiski­stofu leit­uðu til allra þeirra stétt­ar­fé­laga sem við erum félagar í og einnig til Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar um stuðn­ing, þar með talin fjár­hags­legum til að geta ráðið almanna­tengsla­fyr­ir­tæki. Allir þessir aðilar veittu okkur marg­vís­legan stuðn­ing, enn ein­ungis SFR - stétt­ar­fé­lag í almanna­þjón­ustu styrkti okkur fjár­hags­lega. SFR gaf okkur vil­yrði fyrir allt að einni milljón króna til þess að ráða almanna­tengsla­fyr­ir­tæki. Í kjöl­farið var Athygli ráðið og reynd­ist það okkur mik­ill happa­fengur,“ segir Guð­mundur í áður­nefndu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

„Barátta gegn óréttlæti“


Bréfið sem starfs­menn Fiski­stofu sendi Hafn­ar­fjarð­arbæ til að óska eftir fjár­stuðn­ingi er dag­sett 29. októ­ber. Þar kemur fram að áætl­aður kostn­aður vegna fjöl­miðla­ráð­gjafar hafi verið 1,5 millj­ónir króna. Í bréf­inu segir: „Okkur starfs­mönnum Fiski­stofu var fljót­lega ljóst að við stóðum ein og rödd okkar var hjáróma og veik í þessu gjörn­inga­veðri. Jafn­framt var okkur það ljóst að til þess að ein­hver von væri til að snúa þess­ari ólög­mætu og óvit­ur­legu ákvörðun við, þá urðum við að skipu­leggja mál­flutn­ing okkar og fá utan­að­kom­andi ráð­gjafa til að ráða okkur heilt. Það er hvernig bar­átt­unni gegn þessu órétt­læti skyldi hagað, við hverja við ættum að tala máli okkar, hvernig og hvenær það skyldi gert, hvaða rökum skyldi teflt fram og svo fram­vegis.“

Undir bréfið rita fyrr­nefndur Guð­mundur Jóhann­es­son og Björn Jónsson lög­fræð­ingur hjá Fiski­stofu. Hafn­ar­fjarð­ar­bær varð ekki við ósk starfs­manna Fiski­stofu um fjár­stuðn­ing vegna fjöl­miðla­ráð­gjafar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár