Sérstakur saksóknari varði tólf þúsund vinnustundum í verðsamráðsmál

Samkvæmt yfir­liti yfir mann­afla- og tíma­skrán­ingu hjá sér­stökum sak­sókn­ara, vegna rann­sóknar emb­ætt­is­ins á meintu verð­sam­ráði Byko, Húsa­smiðj­unnar og Úlfsins, komu 31 starfs­maður emb­ætt­is­ins að rann­sókn máls­ins. Samkvæmt skrán­ing­unni, sem lögð var fram fyrir dómi og Kjarninn hefur undir höndum, unnu starfs­menn­irnir að mál­inu í alls 11.854 vinnu­stundir. Þá er ótal­inn tíma­fjöld­inn sem fór í flutn­ing máls­ins fyrir Hér­aðs­dómi. Þá hefur Kjarninn óskað eftir sam­bæri­legum upp­lýs­ingum frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, þar sem upp­haf máls­ins má rekja til. Ekkert svar hefur enn borist Kjarn­anum frá stofn­un­inni.

Alls tóku sextán starfs­menn sér­staks sak­sókn­ara þátt í úrvinnslu gagna og yfir­heyrslum við rann­sókn verð­sam­ráðs­máls­ins hjá emb­ætt­inu, sem voru lang mann­afls­frek­ustu liðir rann­sókn­ar­innar að því er fram kemur í yfir­liti emb­ætt­is­ins. Skrán­ingin gildir frá þeim tíma er málið barst emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Allir tólf sak­born­ingar máls­ins voru sýkn­aðir, nema einn sem hlaut skil­orðs­bund­inn dóm.

90 milljóna króna málsvarnarlaun lentu á ríkinu


Upp­haf­lega voru þrettán starfs­menn fyr­ir­tækj­anna ákærðir fyrir þátt sinn í hinu meinta verð­sam­ráði. Einni ákæru var vísað frá, og því stóðu tólf eftir sem tóku til varna fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Dómurinn sýkn­aði í gær alla sak­born­inga af sak­ar­giftum, fyrir utan fram­kvæmda­stjóra fag­sölu­sviðs Byko sem var sak­felldur fyrir hvatn­ingu til verð­sam­ráðs. Hann hlaut eins mán­aðar skil­orðs­bund­inn dóm til tveggja ára, en hann neit­aði sök fyrir dómi. En auk þessa dæmdi Hér­aðs­dómur íslenska ríkið til að greiða nær öll málsvarn­ar­laun sak­born­ing­anna, rúm­lega 90 millj­ónir króna.

Menn­irnir voru hand­teknir í mars 2011, og því hefur málið staðið yfir í rúm fjögur ár. Málið kom upp­runa­lega til efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Þann 1. sept­em­ber tók svo sér­stakur sak­sókn­ari við rann­sókn máls­ins þegar efna­hags­brota­deildin var sam­einuð emb­ætt­inu.

Rík­is­sak­sókn­ari á eftir að taka ákvörðun um hvort dóms­nið­ur­stöð­unni verður áfrýjað til Hæsta­réttar Íslands. Við ákvarð­ana­tök­una mun þar sjálf­sagt vega þungt hvort mik­il­vægt sé að fá fram nið­ur­stöðu Hæsta­réttar út frá for­dæm­is­gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár