Framsóknarflokkur undirstrikar sóknarfæri vegna loftslagsbreytinga

„Með hlýn­andi lofts­lagi skap­ast ný og spenn­andi sókn­ar­færi. Aukin akur­yrkja, nytja­skóg­rækt og fjöl­breytt­ari inn­lend mat­væla­fram­leiðsla er hluti af því að efla íslenskan land­búnað.“ Þetta er á meðal þess sem lesa má í drögum að álykt­unum 33. flokks­þings Fram­sókn­ar­manna, sem fram fer um helg­ina. Drögin eiga enn eftir að hljóta umfjöllun á flokks­þing­inu, og gætu tekið breyt­ingum í með­förum þess.

Textinn er sam­hljóða ályktun um atvinnu­mál sem sam­þykkt var á 32. flokks­þingi Fram­sókn­ar­manna, sem haldið var í febr­úar árið 2013.

Þá er ofan­greint í sam­ræmi við ummæli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­sæt­is­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hann hafði frammi í frétt á RÚV þann 1. apríl síð­ast­lið­inn, þar sem hann sá sömu­leiðis tæki­færi fyrir Ísland vegna lofts­lags­breyt­inga.

Í frétt­inni, þar sem for­sæt­is­ráð­herra var að tjá sig um grafal­var­legar nið­ur­stöður Lofts­lags­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, sagði hann: „ ...Aug­ljós­lega er þetta á heild­ina litið nei­kvætt en í því fel­ast þó tæki­færi til að bregð­ast við þró­un­inni og bregð­ast sem best við henni og það eru ekki síst tæki­færi sem Ísland hefur. [...] Það skortir vatn, orkan verður dýr­ari, það skortir land­rými, þannig að menn gera ráð fyrir því að mat­væla­verð muni fara hækk­andi um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð á sama tíma og þar er sífellt meiri þörf fyrir mat­væla­fram­leiðslu vegna þess að eft­ir­spurnin er að aukast. Þannig að í þessu liggja tví­mæla­laust mikil tæki­færi fyrir Ísland. Við erum að kort­leggja þetta.“

Matvælaöryggið skiptir sköpum


Ofan­greint texta­brot má finna í kafla drag­anna þar sem fjallað er um land­búnað, en þar er und­ir­strikað mik­il­vægi atvinnu­grein­ar­innar hér á landi. „Mat­væla­ör­yggi skiptir eyþjóð sköpum. Fram­sókn­ar­menn leggja áherslu á að efla inn­lenda mat­væla­fram­leiðslu og að auka hlut­deild inn­lendra mat­væla í neyslu, enda er hvort tveggja gjald­eyr­is­spar­andi fyrir þjóð­ina.“

Þá er í drög­unum að álykt­unum flokks­þings Fram­sókn­ar­manna kveðið á um að toll­vernd skuli áfram vera önnur tveggja meg­in­stoða í stuðn­ingi yfir­valda við land­búnað hér á landi, líkt og hjá flest öllum full­valda ríkjum og ríkja­sam­böndum, eins og það er orðað í drög­unum. „Þó verður að huga að því að gera gagn­kvæma samn­inga við önnur ríki eða ríkja­sam­bönd um auk­inn aðgang að mörk­uðum. Þar skal gert að skil­yrði að toll­vernd verði ekki rýmkuð hér, nema fyrir aðgang að mark­aði í öðrum löndum komi á móti. Einhliða nið­ur­fell­ing tolla kemur ekki til greina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár