Gagnrýnir harðlega hringlandahátt ráðherra varðandi Fiskistofu

Guð­mundur Jóhann­es­son, deild­ar­stjóri veiði­eft­ir­lits­sviðs Fiski­stofu, sem hefur komið fram fyrir hönd starfs­manna stofn­un­ar­innar vegna fyr­ir­hug­aðs flutn­ings hennar til Akur­eyrar, gagn­rýnir harð­lega nýjasta útspil Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um að fresta flutn­ingi Fiski­stofu. Ráðherra hefur sagt að hann muni ekki lengur leggja kapp á að Fiski­stofa verði flutt til Akur­eyrar á þessu ári, eins og áætl­anir gerðu ráð fyrir.

„Það er búinn að vera enda­laus hringl­anda­háttur varð­andi þessa ákvörðun ráð­herra frá upp­hafi. Það var lagt af stað í þennan leið­angur, að því er virð­ist, án nokk­urra athug­ana eða und­ir­bún­ings. Bréf ráð­herra til starfs­manna Fiski­stofu frá því í byrjun sept­em­ber hefur ekki verið aft­ur­kallað. Þar af leið­andi hangir bréfið ennþá, bæði yfir Fiski­stofu og okkur starfs­mönnum. Varðandi frum­varpið um breyt­ingu á stjórn­ar­ráðslög­unum þá höfum við starfs­menn mót­mælt því harð­lega og fært fram marg­vís­leg rök máli okkar til stuðn­ings,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Kjarnann.

Eyþór Björns­son Fiski­stofu­stjóri segir í sam­tali við Morg­un­blaðið í morgun að stofn­unin sé að lið­ast í sundur vegna óvissu­á­stands um fram­tíð hennar.

„Það er hár­rétt hjá Fiski­stofu­stjóra að Fiski­stofu er haldið í „helj­ar­g­reipum óvissunnar.“ Frá því þessi ósköp hófust hefur að jafn­aði einn starfs­maður hætt á hálfs­mán­aðar fresti. Og ekki hefur enn verið ráðið í allar þessar stöður. Fjöldi ann­arra starfs­manna er í virkri atvinnu­leit. Það er því ekki ofsagt að stofn­unin sé að byrja að lið­ast í sundur vegna þess­arar dæma­lausu ákvörð­unar ráð­herra,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár