Ritstjóri 365 miðla segir óboðlegt að dómari fái ekki að bera vitni í Aurum-málinu

Kristín Þor­steins­dóttir, rit­stjóri 365 miðla, segir í leið­ara Frétta­blaðs­ins í dag að nauð­syn­legt sé að upp­lýsa hvort sér­stakur sak­sókn­ari hafi logið þegar hann seg­ist ekki hafa vitað um tengsl Sverris Ólafs­sonar, eins dóm­ara í Aurum-mál­inu svo­kall­aða, og Ólafs Ólafs­sonar, sem var dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða. Hún segir nið­ur­stöðu Hæsta­réttar þess efnis að hvorki Sverrir né Guðjón St. Mart­eins­son, sem var dóms­for­maður í Aurum-mál­inu í hér­aði, fái að bera vitni þegar ómerk­ing­ar­krafa sér­staks sak­sókn­ara á sýknu í mál­inu verður tekin fyrir í mál­inu 13. apríl næst­kom­andi vera óboð­lega. Hún megi „ekki vera enda­hnútur þessa máls. Nú taka fjöl­miðlar við,“ segir Kristín.

Einn sak­born­inga í Aurum-mál­inu er Jón Ásgeir Jóhann­es­son, eig­in­maður Ingi­bjargar Pálma­dóttur stærsta eig­anda 365 miðla. Allir sak­born­ing­arnir voru sýkn­aðir í fyrra en rík­is­sak­sókn­ari vill ómerk­ingu dóms­ins vegna van­hæfis Sverris sökum vensla hans við Ólaf. Ef Hæsti­réttur fellst á þau rök verður réttað aftur yfir sak­born­ingum máls­ins fyrir hér­aðs­dómi.

Dómsformaður sendi aðsenda grein til Fréttablaðsins


Fjöl­skip­aður hér­aðs­dómur sýkn­aði í fyrra sumar Jón Ásgeir, Lárus Welding, Magnús Arnar Arn­gríms­son og Bjarna Jóhann­es­son í Aurum-mál­inu. Þeir voru ákærðir fyrir umboðs­svik og hlut­deild í þeim í tengslum við sex millj­arða króna lán­veit­ingu Glitnis til félags sem hét FS 38 ehf., og var í eigu Pálma Har­alds­sonar. Lánið var veitt til kaupa á Aurum Holdings. Einn dóm­ar­anna þriggja, Arn­grímur Ísberg, skil­aði sér­at­kvæði og taldi að sak­fella ætti Lárus, Magnús Arnar og Jón Ásgeir. Hinir tveir dóm­ar­arnir, Guðjón St. og Sverrir, vildu hins vegar sýkna alla sak­born­inga.

Í leið­ara Frétta­blaðs­ins í dag, sem ber nafnið „satt eða ósatt?“, segir Kristín frá því að blað­inu hafi borist aðsend grein frá Guðjóni St. þann 10. júní í fyrra. Þar fjall­aði hann um meint óhæfi Sverris Ólafs­sonar. Guðjón hætti hins vegar við að birta grein­ina nokkru síðar.

Kristín segir að á meðal máls­gagna í ómerk­ing­ar­mál­inu fyrir Hæsta­rétti sé tölvu­póstur frá Guðjóni St. og blaða­greinin sem hann ætl­aði eitt sitt að birta. „Í tölvu­póst­inum segir að Guðjón hafi hætt við birt­ingu grein­ar­innar eftir að hafa rætt efni hennar við rík­is­sak­sókn­ara og sér­stakan sak­sókn­ara. Ástæðan er að á þeim tíma sá hann ekki né reikn­aði með að krafa ákæru­valds­ins fyrir Hæsta­rétti yrði ómerk­ing­ar­krafa. Í tölvu­póst­inum segir síðan: „Ég hefði hins vegar birt grein­ina hefði svo verið."“

Kristín segir málið merki­legt vegna þess að í tölvu­póst­inum og grein­inni eftir Guðjón St. er full­yrt að Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, hafi hringt í Guðjón dag­inn eftir að til­kynnt hafi verið um að Sverrir væri með­dóm­ari í mál­inu. Í því sím­tali hafi Ólafur Þór sjálfur greint frá tengslum Sverris og Ólafs og ekki gert athug­semd við hæfi Sverris.

[caption id="attachment_8229" align="alignnone" width="640"] Jón Ásgeir Jóhann­es­son, sem var árum saman aðal­eig­andi 365 miðla, er einn sak­born­inga í Aurum-mál­inu. Eig­in­kona hans, Ingi­björg Pálma­dóttir, er í dag stærsti eig­andi 365 miðla.[/caption]

Ólafur segir þetta vera rangminni hjá dómaranum


Ólafur sagði í sam­tali við Frétta­blaðið þann 19. mars síð­ast­lið­inn að þetta væri rang­minni hjá dóm­ar­anum. Hann hafi sagt Guðjóni frá því að Sverrir hefði unnið fyrir skila­nefnd Glitnis, sem væri kær­andi í mál­inu og væri með bóta­kröfu vegna þess.

Í leið­ara Krist­ínar segir: „Kunnugir segja það eins­dæmi að dóm­ari hafi haldið því fram opin­ber­lega að sak­sókn­ari hafi logið um atriði er varðar með­ferð­ina. Hæsti­réttur hefur hins vegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki séu ástæður til að leiða frekar í ljós hver segi satt og hver ósatt. Varla getur það verið boð­leg nið­ur­staða út frá sann­girnis- og réttar­ör­ygg­is­sjón­ar­miðum?

Sér­stakur sak­sókn­ari gegnir mik­il­vægu emb­ætti. Hann hefur örlög fjölda manna í höndum sér. Hvaða skoðun sem fólk hefur á per­sónum og leik­endum getum við von­andi öll sam­mælst um að til­gang­ur­inn helgar ekki alltaf með­alið þegar örlög fólks eru í húfi.

Það er nauð­syn­legt að upp­lýsa hvort sér­stakur sak­sókn­ari laug þegar hann sagð­ist ekki hafa vitað um tengsl Sverris og Ólafs Ólafs­sona. Nið­ur­staða Hæsta­réttar er óboð­leg, og má ekki verða enda­hnútur þessa máls. Nú taka fjöl­miðlar við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár