Meiðyrðamál Mumma gegn Braga aftur á leið fyrir dómstóla

Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hefur kraf­ist þess að meið­yrða­mál Guð­mundar Týs Þór­ar­ins­sonar gegn sér, verði end­ur­upp­tekið í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Bragi sem ekki tók til varna við dóms­með­ferð máls­ins, vill nú hreinsa nafn sitt og taka til varna í mál­inu. Aðal­með­ferð í því fer fram í sumar.

Guð­mundur Týr Þór­ar­ins­son, betur þekktur sem Mummi í Götu­smiðj­unni, höfð­aði meið­yrða­mál á hendur Braga Guð­brands­syni, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, í kjöl­far þess að með­ferð­ar­heim­il­inu var lokað árið 2010.

Málið má rekja til atviks hjá Götu­smiðj­unni í lok júní árið 2010, þegar börn á með­ferð­ar­heim­il­inu voru fjar­lægð þaðan að beiðni Barna­vernd­ar­stöðu eftir meintar hót­anir Mumma um lík­ams­meið­ingar í garð barn­anna sem þar dvöldu.

Stefndi forstjóra Barnaverndarstofu


Mummi stefndi síðar for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu fyrir meið­yrði vegna átta ummæla sem höfð voru eftir honum á Vísi og vef­síðu RÚV í kjöl­far lok­unar Götu­smiðj­unnar. Þar sagði Bragi meðal ann­ars að und­ir­rót vanda Götu­smiðj­unnar væri stjórn­un­ar­vandi for­söðu­manns­ins sem væri far­inn að bitna á með­ferð­inni og skaða börnin sem væru í með­ferð. Þá hafi sam­skipti Mumma við börnin farið yfir vel­sæm­is­mörk og fram­ganga hans valdið van­líðan og óör­yggi, auk þess hafi hann atað starfs­mann óhróðri og ekki síst hótað ung­mennum lík­ams­meið­ingum.

Dómur gekk í mál­inu í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 15. októ­ber síð­ast­lið­inn. Um svo­kall­aðan úti­vist­ar­dóm var að ræða þar sem Bragi tók ekki til varna í mál­inu, þar sem ummæli for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu voru dæmd dauð og ómerk og honum gert að greiða Guðmundi Tý 400.000 krónur í miska­bætur og allan máls­kostað, 250 þús­und krónur.

Vill núna taka til varna og krefst endurupptöku


Bragi hefur nú kraf­ist end­ur­upp­töku á mál­inu þar sem hann hyggst taka til varna. Málið var end­ur­upp­tekið í febr­úar með fyr­ir­töku í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Í gær fór fram svokölluð efn­is­fyr­ir­taka í mál­inu þar sem ákveðið var að aðal­með­ferð fari fram í því 3. júní næst­kom­andi. Í grein­ar­gerð sem verj­andi Braga, Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir hæsta­rétt­ar­lög­maður, hefur lagt fram fyrir dómi er ásök­unum Mumma vísað á bug, í átján liðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár