26.675 einstaklingar á vanskilaskrá - listinn heldur áfram að styttast

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Creditinfo eru 26.675 ein­stak­lingar á van­skila­skrá fyr­ir­tæk­is­ins í dag. Ein­stak­lingum á list­anum fer fækk­andi, en til marks um það voru 27.417 ein­stak­lingar á van­skila­skrá á sama tíma í fyrra.

Aðilum sem eru með áskrift­ar­samn­ing við Creditinfo býðst að senda mál inn á van­skila­skrá. Til þess að senda inn mál þurfa van­skil að hafa staðið yfir í 40 daga eða meira og fjár­hæðin að nema 50.000 krónum að lág­marki hjá ein­stak­lingum. Það má þó skrá árang­urs­laus fjár­nám og gjald­þrota­úr­skurði án til­lits til fjár­hæða.

Bankahrunið hafði sitt að segja


Ein­stak­lingum á van­skila­skrá fjölg­aði ört í kjöl­far efna­hags­hruns­ins í lok árs 2008. Við upp­haf hruns­ins voru 16.859 ein­stak­lingar á list­anum, en ári síðar voru þeir orðnir 19.530 tals­ins, og hafði fjölgað um hátt í 2.700 manns á aðeins einu ári.

Fjöldinn náði svo hámarki í nóv­em­ber árið 2013 þegar 28.140 ein­stak­lingar voru skráðir á van­skila­skrá Creditinfo, en þá byrj­aði að fækka aftur á list­anum og hefur sú þróun varað nán­ast sleitu­laust.

Flestir á van­skila­skrá eru á aldr­inum 30 til 39 ára, eða 10,7 pró­sent þeirra sem til­heyra ald­urs­hópnum sem er sama hlut­fall og á ald­urs­bil­inu 40 til 49 ára, en þar eru færri ein­stak­lingar undir.

Ástandið verst á Suðurnesjum


Þá eru 16,8 pró­sent ein­stæðra mæðra og 14,5 pró­sent ein­stæðra feðra á van­skila­skrá, en karlar eru mun lík­legri til að lenda á list­anum en konur, 10,3 pró­sent karla eru á van­skila­skrá og 6,1 pró­sent kvenna.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru 9,5 pró­senta íbúa á van­skila­skrá, en ástandið er sýnu verst á Reykja­nesi þar sem 15,4 pró­sent íbúa eru á list­anum.

Samkvæmt nið­ur­stöðum Creditinfo er ein­stæður faðir á aldr­inum 18-29 ára búsettur á Reykja­nesi lík­leg­astur til að fara á van­skila­skrá, á meðan öldruð kona í þétt­býli á Aust­ur­landi er ólík­leg­ust til að hafna á list­anum.

Fyrirtækjum á vanskilaskrá fækkar líka


Sama þróun hefur átt sér stað hvað varðar lög­að­ila, en fyr­ir­tækjum á van­skila­skrá fer sömu­leiðis fækk­andi, þó er þró­unin þar ekki eins ör. Í októ­ber árið 2008 voru 3.958 fyr­ir­tæki eða félög á van­skila­skrá Creditinfo. Ári síðar voru þau orðin 5.277 og hafði fjölgað um ríf­lega þrettán hund­ruð.

Fjöldinn náði hámarki í ágúst­mán­uði árið 2012 þegar lög­að­ilar á van­skila­skrá urðu 6.978 tals­ins. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Creditinfo eru nú 6.399 félög á van­skila­skrá fyr­ir­tæk­is­ins, sam­an­borið við 6.421 mán­uð­inn á undan og 6.751 á sama tíma fyrir ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár