Einn eigenda Austurs heimtar að Borgun hætti að þjónusta staðinn

Kamran Keivanlou, sem á helmn­ings­hlut í einka­hluta­fé­lag­inu 101 Aust­ur­stræti, sem er rekstr­ar­að­ili og leyf­is­hafi skemmti­stað­ar­ins Austur, krefst þess að korta­fyr­ir­tækið Borgun hætti við­skiptum við félagið Aust­ur­stræti 5, þar sem núver­andi rekstur skemmti­stað­ar­ins sé ekki í sam­ræmi við útgefið rekstr­ar­leyfi.

Eins og Kjarninn hefur greint ítar­lega frá standa yfir miklar deilur á milli tveggja eig­enda­hópa 101 Aust­ur­strætis ehf., ann­ars vegar félags­ins Alfacom Trading, sem er í eigu áður­nefnds Kamran Keivanlou, og fjöl­miðla- og athafna­manns­ins Ásgeirs Kol­beins­sonar og félags í eigu Styrmis Þór Braga­sonar hins vegar.

Austur logar í illdeilum


Ásgeir og Styrmir hafa stefnt Alfacom vegna van­efnda á samn­ingi um kaup á 101 Aust­ur­stræti, og félagið hefur set fram gagn­stefnu þar sem kraf­ist er rift­unar á kaupssamn­ingi. Þá hefur Kamran Keivanlou kært Ásgeir Kol­beins­son og fjár­mála­stjóra skemmti­stað­ar­ins til lög­reglu og sér­staks sak­sókn­ara fyrir fjár­drátt og önnuf meint fjár­mála­mis­ferli. Ásgeir hefur sömu­leiðis kært Kamran fyrir hót­anir í sinn garð og fjöl­skyldu sinnar. Hljóð­upp­taka af meintum hót­unum hefur verið afhent lög­reglu, en Kamran vísar ásök­unum á bug og neitar að hann sé á upp­tök­unni.

Deilur eig­end­anna urðu til þess að Íslands­banki sagði upp banka­við­skiptum við 101 Aust­ur­stræti og þá sagði Borgun sömu­leiðis upp þjón­ustu­samn­ingi við félagið. Félagið Aust­ur­stræti 5 hefur hins vegar gert sam­ing við korta­fyr­ir­tækið og tekur við greiðslum vegna rekst­urs Austurs.

Sýslumaður veitti viðvörun


Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík veitti for­svars­mönnum Austurs við­vörun í síð­ustu viku, þar sem félagið Aust­ur­stræti 5 hafi ekki til­skylin leyfi fyrir rekstri skemmti­stað­ar­ins. Í bréfi Alfacoms til Borgunar er vísað í form­legt bréf frá sýslu­manni þessa efnis. For­svars­maður Alfacom hefur kraf­ist þess að lög­regla loki skemmti­staðnum, á meðan deilur um kaup­samn­ing og meint lög­brot standa yfir.

Í svari Borgunar við kröfu Alfacom þann 4. febr­úar síð­ast­lið­inn taldi korta­fyr­ir­tækið sig ekki geta orðið við kröfu félags­ins, og vís­aði meðal ann­ars til þess að ekki lægju fyrir nægj­an­leg gögn til stuðn­ings kröfu­gerð­inni.

Alfacom ítrek­aði kröfu sína við Borgun bréfleiðis á föstu­dag­inn, og hefur sent Fjár­mála­eft­ir­lit­inu erindi vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár