Grímseyjarferjan síðast boðin út fyrir 13 árum - samningur við Samskip ítrekað framlengdur

Rekstur Gríms­eyj­ar­ferj­unnar Sæfara, sem sinnir sigl­ingum á milli Dalvíkur og Gríms­eyjar og Dalvíkur og Hrís­eyjar, var síð­ast boð­inn út árið 2002, eða fyrir þrettán árum. Flutn­inga­fyr­ir­tækið Samskip hefur á þessum tíma rekið ferj­una sam­kvæmt samn­ingi við Vega­gerð­ina. Rekstr­ar­samn­ing­ur­inn hefur verið fram­lengdur sjö sinnum síðan 2002, en Vega­gerðin hefur greitt tæpan millj­arð króna í styrk með rekstri Gríms­eyj­ar­ferj­unnar á tíma­bil­inu, en um fimmtán pró­sent af styrknum eru vegna sigl­inga til Hrís­eyjar.

Ákveðið að framlengja af ýmsum ástæðum


Upp­haf­legur rekstr­ar­samn­ingur Vega­gerð­ar­innar við Samskip hljóð­aði upp á tvö ár, en samn­ing­ur­inn var fram­lengdur um tvö ár árið 2004, eins og heim­ild var fyrir í samn­ingnum. Samkvæmt skrif­legu svari G. Péturs Matth­í­as­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa Vega­gerð­ar­innar, við fyr­ir­spurn Kjarnans, var ákveðið að fram­lengja vegna áður­nefndar fram­leng­ing­ar­heim­ildar og vegna ánægju með verk­tak­ann, það er Samskip.

Þegar skipt var um Gríms­eyj­ar­ferju á árunum 2006 til 2008, eins og frægt er orðið, þótti Vega­gerð­inni ekki rétt að bjóða ferj­una út undir þeim kring­um­stæðum, að því er fram kemur í svari upp­lýs­inga­full­trúa stofn­un­ar­innar. Því var rekstr­ar­sam­ingur ferj­unnar tví­fram­lengdur um eitt ár í senn, árin 2006 og 2007.

Vegna banka­hruns­ins ákvað Vega­gerðin í lok árs 2008 að fram­lengja rekstr­ar­samn­ing vegna Gríms­eyj­ar­ferj­unnar um tvö ár til við­bótar. Síðan þá hefur samn­ing­ur­inn verið fram­lengdur í þrí­gang, í nóv­em­ber 2010 um eitt ár, þann 7. des 2011 var rekstr­ar­samn­ing­ur­inn fram­lengdur um tvö ár og þann 14. nóv­em­ber 2013 um tvö ár. Ástæður fram­leng­ing­anna má rekja til ánægju Vega­gerð­ar­innar með þjón­ustu og verð verk­tak­ans, að því er fram kemur í áður­nefndu svari Vega­gerð­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Núgild­andi rekstr­ar­samn­ingur rennur út 31. des­em­ber næst­kom­andi. Hjá Vega­gerð­inni hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort og þá hvenær ráð­ist verður í útboð á rekstri Gríms­eyj­ar­ferj­unnar.

Greiðslur með ferjunni hækkað um hundrað milljónir


Árið 2002 greiddi Vega­gerðin tæpar 35 millj­ónir króna með rekstri Sæfara. Upphæðin tók litlum breyt­ingum næstu árin á eftir, eða þar til árið 2006 þegar hún hækk­aði upp í rúmar 44 millj­ónir króna. Árið 2008 tók sam­göngu­styrk­ur­inn aftur stökk upp á við, og hækk­aði upp í tæpar 67 millj­ónir króna.

Síðan þá hefur styrkur Vega­gerð­ar­innar til Gríms­eyj­ar­ferj­unnar hækkað nokkuð ört. Árið 2009 var hann kom­inn upp í tæpar 75 millj­ónir króna, árið eftir hljóð­aði hann upp á tæpar 80,5 millj­ónir króna. Eftir ákvörðun Vega­gerð­ar­innar um að fram­lengja rekstr­ar­samn­ing Sæfara við Samskip í lok árs 2010, hækk­aði nið­ur­greiðsla stofn­un­ar­innar með rekstri Gríms­eyj­ar­ferj­unnar um tæpar átján millj­ónir króna á milli ára, og fór upp í rúmar 98 millj­ónir króna árið 2011.

Sam­göngu­styrk­ur­inn hækk­aði um rúma 21 milljón króna árið eftir, eða upp í tæpar 120 millj­ónir króna. Árið 2013 nam sam­göngu­styrkur Vega­gerð­ar­innar vegna Gríms­eyj­ar­ferj­unnar röskum 124 millj­ónum króna, og í fyrra hækk­aði styrk­ur­inn um tæpar þrettán millj­ónir á milli ára og end­aði í rúmum 137 millj­ónum króna. Frá árinu 2002 hefur því Vega­gerð­inn greidd Sam­skipum hátt í 937 millj­ónir króna vegna rekst­urs Gríms­eyj­ar­ferj­unnar Sæfara.

Þess ber að geta að rekstr­ar­samn­ing­ur­inn er verð­bættur með hlið­sjón af vinnu­launum, olíu­kostn­aði, hafn­ar­gjöldum og öðrum rekstr­ar­kostn­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár