Forstjóri Matorku: Raskar það ekki samkeppni að Samherji hafi keypt eldisstöð á hrakvirði?

Árni Páll Ein­ars­son, for­stjóri Matorku, bregst við umfjöllun um nýlegan fjár­fest­inga­samn­ing fyr­ir­tæk­is­ins við íslenska ríkið í erindi sem lagt var fram á fundi atvinnu­vega­nefndar Alþingis í morgun. Þar segir: „Matorka harmar þá umfjöllun sem verið hefur og lit­ast því miður af rang­færslum og nei­kvæðum áróðri.“

Í skjal­inu full­yrðir for­stjóri Matorku að fjár­fest­inga­samn­ing­ur­inn, vegna fyr­ir­hug­aðrar 3000 tonna fisk­eld­is­stöðvar á Reykja­nesi, sé að fullu í sam­ræmi við lög um íviln­anir vegna nýfjár­fest­inga á Íslandi og aðra fjár­fest­inga­samn­inga sem gerðir hafa verið á grund­velli lag­anna. Samn­ing­ur­inn kveði á um allt að 425 millj­óna króna heim­ild til íviln­ana á tíu ára tíma­bili, núvirt til dags­ins í dag og engir beinir styrkir séu í íviln­unum.

Keyptu eldisstöð á hrakvirði


Þá gerir for­stjóri Matorku sögu land­eld­is­stöðva á Íslandi að umfjöll­un­ar­efni í skjal­inu, í því skyni að verj­ast fram­kominni gagn­rýni um að umræddur fjár­fest­inga­samn­ingur raski sam­keppni.

„Flestar ef ekki allar land­eld­is­stöðvar á Íslandi hafa farið í gegnum gjald­þrot, sumar oft. Til dæmis Sam­herja­stöð að Stað í Grinda­vík, Sam­herja­stöð á Vatns­leysu, stöðvar í Öxar­firði og víðar. Í þessu sam­bandi má nefna að 8,8 millj­arðar króna (á verð­lagi í dag) voru afskrif­aðar af stöðvum á Reykja­nesi sem Samherji starf­rækir fisk­eldi í dag (samkv. bók Halldórs Hall­dórs­sonar, Laxa­veislan mikla, 1992). Þessir fram­leið­endur hafa for­skot á þá sem byggja fisk­eld­is­stöð frá grunni þar sem stöðv­arnar voru keyptar á hrakvirði. Er það ekki sam­keppn­is­röskun?“

Þá skrifar for­stjóri Matorku: „Allir núver­andi og nýir fram­leið­endur hafa tæki­færi á að sækja um ívilnun fari þeir í nýfjár­fest­ingu - enda er miklu dýr­ara að byggja nýja eld­is­stöð en kaupa eld­is­stöð á hrakvirði úr þrota­búi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár