Verjandi Gunnars Scheving ítrekar kröfu um öll rannsóknargögn í LÖKE-málinu

Garðar St. Ólafsson hér­aðs­dóms­lög­maður, verj­andi Gunnars Scheving Thor­steins­sonar lög­reglu­manns, sem ákærður var í LÖKE-mál­inu svo­kall­aða, hefur skrifað rík­is­sak­sókn­ara bréf þar sem hann áréttar ítrek­aðar beiðnir um að aðgang að öllum rann­sókn­ar­gögnum máls­ins. Kjarninn hefur bréfið undir höndum, en það var sent emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara í dag.

Rík­is­sak­sókn­ari ákærði Gunnar Scheving á síð­asta ári og sak­aði hann um að hafa flett upp 45 konum í mála­skrá lög­reglu, svoköll­uðu LÖKE-kerfi, án þess að það tengd­ist störfum hans sem lög­reglu­maður. Þá var Gunnari sömu­leiðis gefið að sök að hafa miðlað per­sónu­upp­lýs­ingum sem áttu að fara leynt til þriðja aðila.

Ágallar á rannsókn leiddu til niðurfellingar


Veiga­mesti ákæru­liður máls­ins, varð­andi upp­flett­ing­arnar í mála­skrá lög­reglu, var felldur niður af rík­is­sak­sókn­ara á dög­unum eftir að í ljós komu veru­legir ann­markar á rann­sókn lög­reglu. Rann­sóknin var á for­ræði emb­ættis rík­is­sak­sókn­ara en unnin af lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum undir stjórn Öldu Hrannar Jóhanns­dóttur, þáver­andi aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra.

Gunnar var sýkn­aður af síð­ari ákæru­liðnum í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í vik­unni, og hyggst sækja skaða­bætur til íslenska rík­is­ins vegna rangra sak­ar­gifta. Gunnar hefur verið boð­aður aftur til starfa hjá lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Borinn röngum sökum


Í bréf­inu sem hann sendi rík­is­sak­sókn­ara í dag, krefst lög­maður Gunnars að öll rann­sókn­ar­gögn máls­ins verði afhent taf­ar­laust. „Gögn um rann­sókn þar sem máls­með­ferð var ekki í sam­ræmi við gild­andi laga­reglur og þar sem skjól­stæð­ingur minn var bor­inn röngum sökum vegna þess að upp­lýs­ingar frá rann­sak­endum voru ekki sann­leik­anum sam­kvæmar eru mjög mik­il­væg sönn­un­ar­gögn fyrir skjól­stæð­ing minn um þann órétt sem hann hefur verið beittur.“

Þá sakar lög­maður Gunnars Öldu Hrönn um að hafa borið rangar sakir á skjól­stæð­ing sinn, bera ábyrgð á mál­inu og krefst þess að fá afhent öll gögn um sam­skipti hennar við emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara. „Sér­stak­lega er óskað eftir upp­lýs­ingum um hvað emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara vissi um afritun af einka­sam­ræðum hans við trún­að­ar­vini og hvernig Alda Hrönn komst yfir illa fengin gögn,“ segir í bréf­inu.

Vill fá gögnin sem hrundu málinu af stað


Lögmaður Gunnars hefur ítrekað óskað eftir að fá afhent kæra eða bréf þáver­andi aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum til rík­is­sak­sókn­ara dag­sett 2. apríl 2014, sem og gögn sem hún sendi emb­ætt­inu þann 31. mars sama ár, sem lágu til grund­vallar rann­sókn lög­reglu á meintum brotum. „Fyrri afsak­anir á borð við að þau væru týnd, sak­sókn­ari skyldi tölvu­gögnin ekki og ætl­aði að fá þau túlkuð eða að krotað hafi verið á frum­ritin og ekki væri til afrit eru ekki boð­legar.“

Þá segir í bréf­inu að ofan­greind gögn séu mik­il­væg sönn­un­ar­gögn um mögu­lega refsi­verða hátt­semi Öldu Hrannar. „Hún veitti rangar upp­lýs­ingar sem leiddu til þess að sak­laus maður sætti ákæru og líkur er á því að með bréf­inu og Excel-gögnum sé hægt að sanna að það gerði hún vís­vit­andi, enda hafi hún haft réttar upp­lýs­ingar undir höndum allan tím­ann. Lögvarðir hags­munir skjól­stæð­ings míns af því að fá öll gögn um hvernig brotið var á honum í hendur eru mjög skýrir og emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara getur ekki haft neina lög­mæt ástæðu til að breiða yfir það hvernig rann­sókn máls­ins hófst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár