Gunnari Scheving boðið aftur til starfa hjá lögreglunni

Gunnari Scheving Thor­steins­syni lög­reglu­manni, sem sætti ákæru rík­is­sak­sókn­ara í LÖKE-mál­inu svo­kall­aða, hefur verið boðið aftur til starfa hjá lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var Gunnari til­kynnt sím­leiðis í dag um að hann gæti snúið aftur til starfa, og að aðgangur hans að upp­lýs­inga­kerfum hafi verið end­ur­virkj­aður. Hann hyggst mæta á lög­reglu­stöð­ina á morgun til að fá nýtt lög­reglu­vesti, en fyrsta vakt hans verður um kom­andi helgi.

Gunnar Scheving var hand­tek­inn á síð­asta ári, vikið tíma­bundið frá störfum hjá lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og síðar ákærður fyrir að hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í mála­skrá lög­reglu, LÖKE-kerf­inu svo­kall­aða, án þess að það tengd­ist störfum hans sem lög­reglu­maður. Þá var hann sak­aður um að hafa miðlað per­sónu­upp­lýs­ingum sem áttu að fara leynt til þriðja aðila.

Rík­is­sak­sókn­ari felldi niður veiga­mesta ákæru­lið máls­ins í síð­ustu viku, eftir að í ljós komu veru­legir ágallar á rann­sókn máls­ins sem var á for­ræði rík­is­sak­sókn­ara en unnin af lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum undir yfir­stjórn Öldu Hrannar Jóhanns­dóttur aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra. Alda Hrönn er nú aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri hjá lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Gunnar var sýkn­aður af seinni ákæru­liðnum í mál­inu í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær og hyggst sækja skaða­bætur til íslenska ríkis vegna rangra saka­gifta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár