Matorka og stofnendur félagsins hafa fengið 90 milljónir frá Rannís

Stofn­endur fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Matorku hafa fengið tæp­lega 90 millj­ónir króna úr tækni­þró­un­ar­sjóði Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Íslands (Rannís) frá árinu 2010.

Fyr­ir­tækið, sem hét áður Íslensk matorka ehf., fékk tæp­lega 27 millj­óna króna styrk árið 2011 til þriggja ára vegna verk­efn­is­ins „Úr grænum haga í fiskimaga.“ Með­um­sækj­endur Íslenskrar matorku um styrk­inn voru Laxá ehf., Fóð­ur­blandan hf., Matís og Háskóli Íslands. Markmið verk­efn­is­ins, sam­kvæmt vef­síðu Rannís, var að lækka fóð­ur­kostnað í fisk­eldi og þróa ný íslensk hrá­efni í fóður sem eru ódýr, umhverf­is­væn og sjálf­bær.

Ragn­heiður Inga Þór­ar­ins­dóttir, verk­fræð­ingur, sem átti upp­haf­lega þriðj­ungs­hlut í Íslenskri matorku við stofnun félags­ins í gegnum félagið Svinna-verk­fræði ehf., var fyrst titluð sem verk­efn­is­stjóri yfir verk­efn­inu, en Stefanía Katrín Karls­dóttir tók síðar við verk­stjórn­inni af Ragn­heiði. Stefanía, sem er mat­væla­fræð­ingur og við­skipta­fræð­ingur og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Árborg, er sömu­leiðis einn stofn­anda Íslenskrar matorku og átti þriðj­ungs­hlut í félag­inu við stofnun í gegnum félagið Nova Invest­ment, sem hún á ásamt eig­in­manni sínum Eiríki Svav­ars­syni hæsta­rétt­ar­lög­manni.

Milljónirnar streymdu inn


Stefanía var einnig í for­svari fyrir verk­efni sem hlaut 23,5 millj­óna króna styrk úr tækni­þró­un­ar­sjóði Rannís árið 2010. Verk­efnið laut að því að byggja upp nýja útflutn­ings­grein, fram­leiðslu á hvítum mat­fiski í hlý­vatns­eldi. Þar að auki fékk Stefanía 12,5 millj­óna króna styrk úr tækni­þró­un­ar­sjóði Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Íslands í fyrra, en með­um­sækj­endur hennar að styrknum voru Íslensk matorka og Matís. Markmið verk­efn­is­ins var að hefja þör­unga­ræktun í frá­rennsli frá fisk­eldi.

Þá hefur áður­nefnd Ragn­heiður Inga, einn af stofn­endum Íslenskrar matorku, tví­vegis hlotið veg­lega styrki úr tækni­þró­un­ar­sjóði Rannís. Árið 2013 fékk hún 14 millj­óna króna styrk til tveggja ára frá Rannís vegna land­eldis á Evr­ópu­humri, og í fyrra fékk hún 12,5 millj­óna styrk úr tækni­þró­un­ar­sjóðnum til verk­efnis sem þróar hag­kvæma fram­leiðslu á fiski og græn­meti, með því að nota jarð­hita og ferskt hreint vatn. Með­um­sækj­endur að síð­ast­nefnda verk­efn­inu voru Bioforsk, Háskóli Íslands og Land­bún­að­ar­há­skóli Íslands.

Nú á að einbeita sér að bleikjueldi


Eins og áður segir á Ragn­heiður félagið Svinna-verk­fræði ehf. sem aftur á tæp­lega tólf pró­senta hlut í einka­hluta­fé­lag­inu Rann­sóknir og þróun, sem áður hét Matorka. Matorka Holdings, sviss­neskt móð­ur­fé­lag Matorku ehf., á ríf­lega 88 pró­senta hlut í Rann­sóknum og þróun á móti Svinnu-verk­fræði ehf.

Áður­nefnt félag Stefaníu K. Karls­dóttur og Eiríks Svav­ars­sonar, Nova Invest­ment, á 15 pró­senta hlut í Matorku Holdings. Þá á félagið Landás tæp­lega 15 pró­senta hlut í móð­ur­fé­lagi Matorku ehf., en það félag er í eigu Sjafnar Sig­ur­gísla­dóttur, fyrr­ver­andi for­stjóra Matís, og var þriðja félagið sem kom að stofnun Íslenskrar matorku árið 2010.

Tækni­þró­un­ar­sjóður Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Íslands hefur þannig frá árinu 2010 ýmist styrkt stofn­endur Matorku eða félagið sjálft í sam­vinnu við aðra, um tæp­lega 90 millj­ónir króna vegna ýmissa verk­efna. Eins og kunn­ugt er gerði félagið umdeildan fjár­fest­inga­samn­ing við ríkið á dög­unum vegna fyr­ir­hug­aðs bleikju­eldis á Reykja­nesi. Samkvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins um málið gætu íviln­anir fjár­fest­inga­samn­ings­ins numið hátt í 60 pró­sentum af heild­ar­fjár­fest­ingu Matorku vegna verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár