Hanna Birna fékk fjórum sinnum fjölmiðlaráðgjöf á síðasta ári vegna Lekamálsins

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­harra, fékk fjöl­miðla­ráð­gjöf frá ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Argus vegna Leka­máls­ins í fjögur skipti á fjög­urra mán­aða tíma­bili á árinu 2014. Þetta kemur fram í skrif­legu svari inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Eins og Kjarninn greindi fyrstur frá á dög­unum, þá greiddi ráðu­neytið ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu tæpar 2,4 millj­ónir króna á síð­asta ári fyrir fjöl­miðla­ráð­gjöf vegna Leka­máls­ins á síð­asta ári. Fréttin byggði á yfir­liti ráðu­neyt­is­ins yfir aðkeypta lög­fræði- og fjöl­miðla­ráð­gjöf, sem tekið var saman að beiðni Kjarnans. Kjarninn óskaði þá eftir frek­ari sund­ur­liðun á

Samkvæmt áður­nefndri sund­ur­liðun veitti Argus Hönnu Birnu fjöl­miðla­ráð­gjöf í jan­ú­ar­mán­uði í fyrra, en reikn­ingur ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins fyrir þá vinnu hljóð­aði upp á 279.000 krónur.

Þá fékk þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra fjöl­miðla­ráð­gjöf frá Argus sömu­leiðis í febr­úar 2014, fyrir 669.600 krónur. Reikn­ingur fyrir fjöl­miðla­ráð­gjöf handa ráð­herra í mars­mán­uði í fyrra hljóðar upp á 502.200 krónur og reikn­ingur frá Argus fyrir sams­konar þjón­ustu í apríl 2014 er up á 418.500 krónur.

Þar að auki veitti Argus inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu sér­staka mark­aðs- og þjón­ustu­ráð­gjöf í þrjú skipti á þriggja mán­aða tíma­bili, í sept­em­ber, októ­ber og nóv­em­ber á síð­asta ári.

í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur jafn­framt fram að LEX lög­manns­stofa hafi þegið tæp 860 þús­und krónur fyrir lög­fræði­ráð­gjöf vegna umfjöll­unar DV. Reikn­ing­arnir frá LEX eru dag­settir 30. apríl 2014 og 31. ágúst 2014. Engar frek­ari skýr­ingar á veittri ráð­gjöf fylgdu með svari ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár