Fjárfestingasamningur án hliðstæðu við fyrirtæki í samkeppni

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­að­ar­ráð­herra, kvaðst aðspurð í Kast­ljósi RÚV í kvöld ekki geta svarað því hvort nýgerður fjár­fest­inga­sam­ingur hennar fyrir hönd rík­is­ins við fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Matorku eigi sér for­dæmi.

Matorka hyggst koma á fót 3000 tonna bleikju­eldi á Reykja­nesi, en félagið mun fá sam­kvæmt umfjöllun Kast­ljós­ins fá íviln­anir á bil­inu 35 til 60 pró­sent af fjár­fest­ingu þeirra í eld­inu. Fjallað var um fjár­fest­inga­samn­ing rík­is­ins við félagið í Við­skipta­blað­inu fyrir helgi.

Ríflegar ívilnanir


Samkvæmt samn­ingnum fær félagið fær afslátt af fjölda skatta og gjalda. Tekju­skatts­pró­sentan verður 15 pró­sent, á meðan önnur fyr­ir­tæki greiða 20 pró­senta tekju­skatt. Þá fær félagið helm­ings­af­slátt af trygg­inga­gjald­inu og lög­bundnu hámarki fast­eigna­gjalda, und­an­þágur vegna greiðslu aðflutn­ings­gjalda, hag­stæð­ari fyrn­inga­reglur, íviln­anir vegna virð­is­auka­skatts af inn­flutn­ingi og sér­stakan þjálf­un­ar­styrk fyrir starfs­menn. Allar íviln­an­irnar eiga sér for­dæmi í fjár­fest­inga­samn­ingum rík­is­ins vegna stór­iðju, gagna­ver, kís­il­ver og önnur fyr­ir­tæki.

Hlutfall íviln­anna af heild­ar­fjár­fest­ingu félags­ins, sem hyggur á sam­keppni við fjölda íslenskra fyr­ir­tækja sem fyrir eru í bleikju­eldi, hefur vakið athygli. Samkvæmt Við­skipta­blað­inu nemur það að lág­marki 35 pró­sent en allt að 60 pró­sentum. Andvirði rík­is­styrks­ins hleypur á 430 millj­ónum króna á meðan heild­ar­fjár­fest­ing Matorku vegna bleikju­eld­is­ins við Grinda­vík er áætluð um 1.200 millj­ónir króna. Að með­töldum áður­nefndum þjálf­un­ar­styrk, þar sem kostn­aður getur numið allt að 295 millj­ónum króna, en þá slagar hlut­fall íviln­anna af fjár­fest­ing­unni upp í 60 pró­sent.

Skekkir samkeppni


Í sam­tali við Kast­ljósið sagði Hösk­uldur Stein­ars­son, for­maður sam­taka fisk­eld­is­fyr­ir­tækja, það skjóta skökku við að ríkið leggi einu fyr­ir­tæki til miklar íviln­anir á sama tíma og fyr­ir­tæki sem hafi byggt upp fram­leiðslu sína og markað án þess að hafa notið við­líkra styrkja. Hösk­uldur benti á í Kast­ljós­inu að áætluð árs­fram­leiðsla Matorku sé álíka og öll bleikju­fram­leiðsla á Íslandi á árs­grund­velli. Fyr­ir­ætl­anir Matorku feli í sér að heims­fram­leiðslan auk­ist um helm­ing, en Íslend­ingar fram­leiða 65 pró­sent allrar bleikju í heim­inum. Fyr­ir­ætl­an­irnar muni aug­ljós­lega hafa áhrif á markað fyrir afurð­irnar og þannig vinni ríkið í raun gegn afurð­unum.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­að­ar­ráð­herra, sagði fjár­fest­inga­samn­ing rík­is­ins við Matorku sam­bæri­legan við aðra slíka samn­inga sem gerðir hafa verið til að laða erlenda fjár­fest­ingu til lands­ins og til að skapa skil­yrði í sam­keppni við aðrar þjóðir. Þá sagð­ist hún ekki hafa áhyggjur af því að íviln­anir til fyr­ir­tæk­is­ins skekki sam­keppn­is­stöðu í geir­anum og bætti við að önnur fyr­ir­tæki geti sömu­leiðis leitað eftir slíkum samn­ingum hyggi þau á fjár­fest­ingu.

Eigendur tengdir fjármálaráðherra


Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum eru helstu eig­endur Matorku þeir Benedikt Ein­ars­son og Eiríkur Svav­ars­son. Benedikt er frændi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og fyrr­ver­andi við­skipta­fé­lagi hans á árunum fyrir hrun. Þá er Benedikt hlut­hafi í Thorsil, sem hlaut nýverið fjár­fest­inga­samn­ing við ríkið vegna kís­il­vers á Reykja­nesi og þá á hann hlut í félag­inu sem keypti Borgn af Lands­ban­anum nýverið, og Kjarninn sagði frá fyrstur fjöl­miðla.

Eiríkur Svav­ars­son er hæsta­rétt­ar­lög­maður og átti sæti í hafta­hópi stjórn­valda þar til nýlega, en þangað var hann ráð­inn af Bjarna Bene­dikts­syni. Eiríkur var áber­andi í sam­tök­unum InDefence og hefur meðal ann­ars gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Garðabæ. Eig­in­kona hans er einn stofn­enda Matorku.

Viðbót klukkan 13:11 18. mars 2015:


Benedikt Ein­ars­son, lög­maður og fjár­festir, seg­ist ekki eiga neinn eign­ar­hlut, hvorki beint né óbeint, í Matorku ehf. eða sviss­neska félag­inu Matorku Holding AG. Í tölvu­pósti sem Benedikt sendi Kjarn­anum segir: „Ég sit í stjórn Matorku Holding AG fyrir hönd hlut­hafa sem heitir P126 ehf., en það félag er að fullu í eigu föður míns, Einars Sveins­sonar, í gegnum erlent eign­ar­halds­fé­lag hans. P126 á tæp­lega 5% í Matorku og því ekki meiri­hluta­eig­andi (Mig minnir jafn­framt að hlutur Eiríks Svav­ars­sonar og hans konu sé undir 20%). Ég er ekki heldur, hvorki beint né óbeint, hlut­hafi í Borgun eða Thorsil.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár