Sjávarútvegurinn hagnaðist um 72 milljarða króna árið 2013

Hagnaður sjáv­ar­út­vegs­ins fyrir afskriftir, fjár­magns­kostnað og tekju­skatt nam 72 millj­örðum króna árið 2013, og minnk­aði á milli ára sem hlut­fall af heild­ar­tekjum sjáv­ar­út­vegs­ins. Þetta kemur fram í Hag­tíð­indum Hagstofu Íslands, um hag veiða og vinnslu árið 2013.

Árið 2012 nam hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna 79,7 millj­örðum króna fyrir afskriftir, fjár­magns­kostnað og tekju­skatt.

Útgerðin greiddi 12,8 millj­arða í veiði­gjöld fisk­veiði­árið 2012/2013, sem stóð frá 1. sept­em­ber 2012 til 31. ágúst 2013. Eftir að veiði­gjaldið var lækkað verður það 9,2 millj­arðar króna fisk­veiði­árið 2013/2014. Í árs­reikn­ingum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna er veiði­gjaldið talið með öðrum rekstr­ar­kostn­aði.

Samkvæmt efna­hags­reikn­ingi námu heild­ar­eignir sjáv­ar­út­vegs­ins tæpum 530 millj­örðum króna í árs­lok 2013. Þá námu skuldir geirans rúmum 380 millj­örðum króna, miðað við 429 millj­arða árið áður, og eigið fé um 149 millj­arða, sam­an­borið við 106 millj­arða í árs­lok 2012. Eig­in­fjár­hlut­fallið reynd­ist 28,2 pró­sent í árs­lok 2013 sam­an­borið við 19,9 pró­sent í lok árs 2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár