Stjórn LR um LÖKE-málið: „Ætla má að ekki hafi verið rétt að málum staðið“

„Stjórnin hefur og mun vinna að því að afla frek­ari upp­lýs­inga um upp­haf og rann­sókn þessa máls en ætla má miðað við þá opin­beru umræðu, að ekki hafi verið rétt að málum staðið.“ Þetta segir í skrif­legu svari Guð­mundar Inga Rún­ars­sonar, for­manns Lög­reglu­fé­lags Reykja­víkur (LR), við fyr­ir­spurn Kjarnans varð­andi LÖKE-málið svo­kall­aða.

Eins og kunn­ugt er felldi Rík­is­sak­sókn­ari niður veiga­mesta ákæru­lið­inn í mál­inu, þar sem lög­reglu­mað­ur­inn Gunnar Scheving Thor­steins­son var upp­haf­lega sak­aður um að hafa flett upp 45 konum í LÖKE-mála­skrá lög­reglu án þess að það tengd­ist störfum hans sem lög­reglu­maður. Í ljós kom að rann­sókn lög­reglu, sem Rík­is­sak­sókn­ari hafði for­ræði yfir, var veru­lega ábóta­vant og því var ákæru­lið­ur­inn lát­inn niður falla.

Verjandi Gunnars, Garðar Steinn Ólafsson hér­aðs­dóms­lög­maður, hefur gagn­rýnt Öldu Hrönn Jóhanns­dóttur þáver­andi aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, fyrir fram­göngu hennar í mál­inu og hefur sagt að veikur mála­til­bún­aður hafi runnið undan rifjum hennar.

Í áður­nefndu svari for­manns Lög­reglu­fé­lags Reykja­víkur, við fyr­ir­spurn Kjarnans, kemur fram að stjórn félags­ins muni ekki tjá sig um málið fyrr en frek­ari nið­ur­staða liggi fyrir. „En að sjálf­sögðu harmar stjórn Lög­reglu­fé­lags Reykja­víkur, ef svo reyn­ist, að þarna hafi verið farið fram með meira kappi en for­sjá.

Stjórn Lög­reglu­fé­lags Reykja­víkur lýsir jafn­framt fullum stuðn­ingi við sína félaga í öllum þeim málum sem kunna að koma upp. Félags­stuðn­ingur er lyk­il­at­riði á stundum sem þessu,“ segir að lokum í svari for­manns LR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár