Ögmundur Jónasson styður allt að 70 prósenta útgönguskatt

Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna og fyrr­ver­andi ráð­herra, telur að leggja eigi allt að sjö­tíu pró­senta útgöngu­skatt á kröfu­hafa föllnu bank­anna, ætli þeir með hlut sinn úr landi. Ögmundur lýsir afstöðu sinni í færslu á vef­síðu sinni, undir fyr­ir­sögn­inni: „Við eða hrægamm­arnir?“

Þar vitnar þing­mað­ur­inn til nýlegra frétta af því að vog­un­ar­sjóður í eigu George Soros, sem hagn­að­ist gríð­ar­lega árið 1992 með því að fella breska pundið, hafi eign­ast kröfur í þrotabú Glitnis. Ögmundur segir sjóð­inn hafa keypt köfur upp á 44 millj­arða króna á geng­inu 27 til 29 pró­sent af nafn­virði, sem þýði að sjóð­ur­inn hafi varið 13 millj­örðum til kaupanna og von­ist til að græða allt að þrjá­tíu millj­arða króna á við­skipt­unum.

„Til eru þeir - og er ég í þeim hópi - sem þykir þetta vera eigna­upp­taka á kostnað íslensks sam­fé­lags sem hefur fengið að blæða illi­lega vegna hruns­ins. Þessi síð­ustu brask-kaup nema þó mun hærra hlut­falli af nafn­virði en fyrri kaup sem fóru að sögn niður í 4% af nafn­virði. Þeir sem þá keyptu gerðu það í von um að ganga út með 96% í eigin vasa. Ekki gátu þeir vitað að það yrði svo gott en vogun vinnur vogun tapar. Þeir heita ekki vog­un­ar­sjóðir fyrir ekki neitt.„

Þá gefur Ögmundur lítið fyrir mál­flutn­ing þeirra sem talað hafa fyrir hóf­samri skatt­lagn­ingu á kröfu­hafa föllnu bank­anna. „Hrægamma­sjóðir eru nátt­úr­lega miklu betra nafn á þennan hóp en vog­un­ar­sjóðir því þeir sér­hæfa sig í að flögra yfir fyr­ir­tækjum og sam­fé­lögum sem lent hafa í skip­broti. Að tala um eigna­upp­töku hjá hræ­gömmum -einsog heyrst hefur- þegar komið er í veg fyrir að þeir gangi út með ráns­feng sinn er nátt­úr­lega eins og hvert annað grín.

Skatt­lagn­ing­ar­töl­urnar sem stjórn­völd ættu að vera að tala um - og þar með kröfur þess aðila sem mest hefur verið hlunn­far­inn, íslensks sam­fé­lags - ættu að lág­marki að liggja í 60-70% ef þá ekki hærri.

Eða hvers vegna ættu þeir allra séð­ustu sem keyptu kröfur á 4% af nafn­virði að geta gengið út með fullar end­ur­heimtur? En jafn­vel þótt þeir fengju aðeins brota­brot af nafn­virði fjár­fest­ing­ar­innar væri gróði þeirra eftir sem áður gríð­ar­legur. Sá sem kaupir á 4% af nafn­virði en selur á 27% og þyrfti síðan að greiða 70% skatt græðir 100% - tvö­faldar með öðrum orðum fjár­fest­ingu sína,“ skrifar Ögmundur á vef­síðu sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár