Sigríður Björk segist ekki hafa brotið lög

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir að hún hafi ekki gerst brot­leg við lög þegar hún varð við ósk Gísla Freys Val­dórs­sonar, þáver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, um að senda honum grein­ar­gerð um mál­efni hæl­is­leit­and­ans Tony Omos. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem Kjarn­anum barst nú rétt í þessu.

Í frétta­til­kynn­ing­unni frá Sigríði Björk segir:

Vegna úrskurðar Per­sónu­verndar í máli nr. 2014/1779 tel ég rétt að árétta eft­ir­far­andi:

Í nið­ur­st­aðu Per­sónu­verndar kemur ekki fram að ég hafi gerst brot­leg við lög þegar ég varð við ósk aðstoð­ar­manns Inn­an­rík­is­ráð­herra um að senda honum skýrslu­drög um mál­efni hæl­is­leit­anda þann 20. nóv­em­ber 2013. Per­sónu­vernd kemst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að miðlun skýrslu­drag­anna hafi ekki stuðst við við­hlít­andi heim­ild þar sem hún var ekki á meðal gagna í því máli hæl­is­leit­and­ans sem til með­ferðar var í ráðu­neyt­inu. Það gat ég sem send­andi hvorki vitað né tryggt.

Per­sónu­vernd segir í úrskurði sínum „að mót­taka aðstoð­ar­manns­ins á skýrslu­drög­unum frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum hafi talist liður í starf­semi ráðu­neyt­is­ins og það því ábyrgð­ar­að­ili að þeirri vinnslu sem í mót­töku drag­anna fólst“. Það var því ráðu­neyt­is­ins að tryggja að rétt yrði farið með skjalið. Það var mat lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum að laga­leg heim­ild væri til staðar fyrir miðlun skýrslu­drag­anna.

Af nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar verður einnig ráðið að þörf er á að yfir­fara innan stjórn­sýsl­unnar verk­ferla vegna krafna um upp­lýs­inga­ör­yggi og öryggi við miðlun per­sónu­upp­lýs­inga.

Í nið­ur­stöðukafla Per­sónu­verndar segir hins vegar:

„Fram­an­greindan skort á skrán­ingu hjá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu telur Per­sónu­vernd hafa farið í bága við 1. og 2. mgr. 11. gr. og 12. gr. laga nr. 77/2000 (Lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga). Á það einnig við um skort á skrán­ingu ráðu­neyt­is­ins á mót­t­töku fyrr­nefndrar fram­burð­ar­skýrslu frá Útlend­inga­stofnun.

Loks liggur fyrir að bæði við send­ingu Lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum á fyrr­nefndum skýrslu­drögum og send­ingu Útlend­inga­stofn­unar á áður­nefndri fram­burð­ar­skýrslu voru ekki gerðar full­nægj­andi örygg­is­ráð­staf­anir í ljósi fram­an­greindra ákvæða.“

Þá segir í úrskurð­ar­orði Per­sónu­verndar:

„Skortur á skrán­ingu um miðlun drag­anna í mála­skrá lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum, sem og um öflun þeirra í mála­skrá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, fór í bága við kröfum um upp­lýs­inga­ör­yggi. Hið sama gildir um skort á skrán­ingu um mót­t­töku ráðu­neyt­is­ins hinn 20. nóv­em­ber 2013 á fram­burð­ar­skýrslu Tony Omos frá Útlend­inga­stofnun.

Ekki var gætt við­un­andi öryggis við miðlun fyrr­nefndra skýrslu­draga til ráðu­neyt­is­ins frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og fyrr­nefndrar fram­burð­ar­skýrslu frá Útlend­inga­stofnun til ráðu­neyt­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár